<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-10-05T14:09:23" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 14:10:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T14:09:23">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="65">
      <ns:málsheiti>niðurfelling vaxtabóta og staða tekjulágra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við erum reyndar með greiningu frá því í sumar sem
    við unnum m.a. með aðilum vinnumarkaðarins þar sem kemur fram að frá árinu
    2024 hefur kaupmáttur aukist í öllum tekjutíundahópum og reyndar í öllum
    þeim undirhópum sem við gátum tekið til. Þýðir það að allir hópar
    samfélagsins hafi það frábært? Nei. Það þýðir bara að þróunin hefur þó
    verið í rétta átt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður spyr: Hvað hefur breyst síðan þá? Síðan þá höfum við
    samþykkt hallalaus fjárlög. Verðbólga er þrátt fyrir allt ekki 10% hér á
    landi. Hún var ekki undir 5% allt síðasta kjörtímabil. Við höfum líka
    farið í úrræði sem snúa að húsnæðismarkaði. Það er líka verið að fara að
    mæla fyrir síðar í vikunni úrræðum sem snúa að leigumarkaði. Við höfum
    eflt hlutdeildarlánakerfið og við erum að styrkja önnur úrræði á
    húsnæðismarkaði. Það er búið að fara hér af stað með stórfellda
    innviðauppbyggingu þannig að það er margt sem hefur komið til. En við
    lögðum alltaf áherslu á það, þótt ég þekki ekki tillögur Framsóknar í
    smáatriðum, þegar við í Samfylkingunni vorum í minni hluta að vera ábyrg
    og fjármagna okkar tillögur <ns:bjalla/> því það er auðvelt að útdeila
    útgjöldum eins og var gert hér í áraraðir, skila hundruðum milljarða í
    halla og skila auðu í því. Það er erfitt að reyna að mæta þessu með
    einhverjum hætti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>