<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-10-05T14:11:39" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 14:16:04 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T14:11:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="100">
      <ns:málsheiti>stjórnsýslulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á
    stjórnsýslulögum. Frumvarpið var ekki útrætt á síðasta löggjafarþingi og
    er þess vegna endurflutt. Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði
    almenn heimild sjálfstæðra stjórnsýslunefnda sem leysa úr kærumálum til að
    leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Dómstólum á Íslandi hefur í 30 ár verið fært samkvæmt lögum nr.
    21/1994 að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins í málum þar sem vafi
    leikur á um hvernig túlka beri ákvæði EES-samningsins. Þó að álit
    dómstólsins séu ekki bindandi að íslenskum rétti hafa þau haft verulega
    þýðingu við skýringu á efni EES-reglna og túlkun innlendra réttarreglna
    sem byggjast á þeim. EFTA-dómstóllinn hefur í gegnum tíðina ekki aðeins
    veitt dómstólum frá EFTA-ríkjum álit heldur líka sjálfstæðum
    stjórnsýslunefndum, til að mynda frá Noregi og Liechtenstein. Á Íslandi er
    staðan hins vegar sú að engin sjálfstæð stjórnsýslunefnd hefur leitað
    álits hjá EFTA-dómstólnum, að undanskilinni kærunefnd útboðsmála sem hefur
    haft til þess lagaheimild frá árinu 2013 og nýtt hana tvisvar. Af
    úrskurðarframkvæmd þeirra stjórnsýslunefnda þar sem helst reynir á túlkun
    EES-reglna verður ráðið að heimild þeirra til að leita álits þyki ekki
    vera nægilega skýr vegna þess að lög nr. 21/1994 víki aðeins að heimild
    dómstóla til að leita álits en ekki stjórnsýslunefnda. Þessi staða tengist
    einnig frumkvæðismáli hjá Eftirlitsstofnun EFTA varðandi Ísland sem lýtur
    að því hvort umhverfisverndar-, útivistar- og hagsmunasamtök teljist hafa
    fullnægjandi aðgang að réttlátri málsmeðferð í samræmi við tilskipun um
    mat á umhverfisáhrifum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Stjórnsýslunefndir geta, ekki síður en
    dómstólar, staðið frammi fyrir flóknum álitamálum á sviði EES-réttar. Að
    gera þeim kleift að afla álits við meðferð fordæmisgefandi mála getur
    dregið að einhverju leyti úr líkum á að dómsmál verði höfðað til
    ógildingar niðurstöðu nefndarinnar. Verði dómsmál höfðað er einnig
    ólíklegra að dómstóll hnekki niðurstöðu nefndarinnar vegna túlkunar á því
    atriði sem álitið varðar. Þá er ljóst að mörg þeirra mála sem sjálfstæðar
    stjórnsýslunefndir fjalla um koma ekki til kasta dómstóla, svo sem vegna
    þess að aðilar máls hafa ekki þau fjárráð sem nauðsynleg eru til að reka
    mál fyrir dómstólum eða vegna þess að þeir fjárhagslegu hagsmunir sem
    málið varðar eru of litlir til að málarekstur fyrir dómstólum svari
    kostnaði. Sú staða dregur síst úr mikilvægi þess að reglur EES-réttarins
    séu virtar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég legg til að heimild stjórnsýslunefnda til að leita ráðgefandi
    álits EFTA-dómstólsins verði komið fyrir í stjórnsýslulögum í þeim kafla
    laganna sem fjallar um stjórnsýslukærur. Lagt er til að heimildin verði
    almenn, enda er það ekki löggjafans heldur EFTA-dómstólsins að meta það
    hvaða stjórnsýslunefndir séu nægilega sjálfstæðar að lögum til að teljast
    vera dómstóll eða réttur í skilningi samningsins um eftirlitsstofnun og
    dómstól. Samkvæmt frumvarpinu verður það á forræði nefndarinnar sjálfrar
    hvort ráðgefandi álits verður leitað. Aðili að kærumáli getur óskað eftir
    því að álits sé aflað en nefndinni er ekki skylt að verða við þeirri ósk.
    Hún metur sjálf hvort þörf sé á því að leita álits og horfir þar m.a. til
    þess hvort uppi sé réttlætanlegur vafi um túlkun EES-reglna og hvort
    skýring þeirra hafi raunverulega þýðingu fyrir úrslit málsins. Gert er ráð
    fyrir að ákvörðun nefndarinnar um hvort ráðgefandi álits verði leitað sé í
    formi úrskurðar. Þegar nefndin óski álits rofni lögmæltur
    afgreiðslufrestur málsins og haldi áfram að líða þegar dómur um ráðgefandi
    álit hefur verið kveðinn upp.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Verði frumvarpið að lögum munu stjórnsýslunefndir hafa sömu
    möguleika og dómstólar hafa haft í rúm 30 ár til að eiga samstarf við
    EFTA-dómstólinn um túlkun EES-réttar. Það gerir stjórnsýslunefndum hægara
    um vik að taka upplýsta ákvörðun um flókin álitamál á sviði EES-réttar og
    styrkir fordæmisgildi úrlausna þeirra. Það styrkir líka markmið
    EES-samningsins um einsleitni, þ.e. að tryggja að túlkun og beiting
    EES-reglna sé samræmd á Evrópska efnahagssvæðinu öllu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni
    þessari umræðu vísað til hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og svo
    til 2. umræðu í þinginu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>