<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-10-05T14:18:32" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 14:20:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T14:18:32">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="100">
      <ns:málsheiti>stjórnsýslulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og það
    errétt sem hér er sagt að við höfum verið hér áður. Það er búið að mæla
    fyrir þessu áður og þessi vinna hófst áður en þessi ríkisstjórn tók við og
    raunar hófst, skilst mér, á undan þessu frumkvæðismáli til ESA, bara svo
    það liggi alveg fyrir. Það hafa verið kveðnir upp úrskurðir sjálfstæðra
    stjórnsýslunefnda í gegnum tíðina þar sem í rauninni hefur verið leitað
    eftir því að fá ráðgefandi álit en því hefur verið hafnað. Í þessu
    tilviki, þó að ég skilji alveg hvaðan hv. þingmaður er að koma, þá liggur
    alveg fyrir, eins og ég fór yfir í minni framsögu, að það er ekki
    sjálfgefið að leita til dómstóla eftir að svona úrskurður fellur. Það er
    fjárfrekt og getur verið kostnaðarsamt. Svo er það líka þannig ef við erum
    að leitast við að reyna að takmarka þann tíma sem mál velkjast um í
    kerfinu að ef það eru uppi flókin túlkunarmál og stjórnsýslunefnd og
    úrskurðaraðilar sjá fyrir að vandræði gætu komið upp, það gæti leitt til
    þess að þetta valdi töfum síðar í dómskerfinu, að þetta komi þá upp á
    sviði dómstóla og annaðhvort verði vandræði þar í tengslum við málið, sem
    felur í sér að það þarf einmitt að leita til EFTA-dómstólsins þá, eða að
    úrskurði verði hnekkt á öðrum forsendum. Þannig að minn skilningur í þessu
    samhengi er í rauninni bara að sjá fyrir sér að einhverju leyti að flýta
    fyrir í kerfinu og í þeim tilvikum þar sem erfitt getur reynst að fara
    dómstólaleiðina síðar meir sé þá hægt að skera úr um þessi atriði
    fyrr.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vek þó athygli á því að úrskurðarnefnd um útboðsmál, sem hefur
    haft aðgengi að EFTA-dómstólnum í tengslum við þetta frá 2013, hefur notað
    þetta vald tvisvar sinnum. Það er ekki endilega búist við því að það komi
    inn hrina af álitsbeiðnum. Þetta er einfaldlega valkostur þegar um mjög
    flókin túlkunaratriði er að ræða þannig að ég sé ekki að þetta muni
    stórkostlega breyta kerfinu þó að þetta sé réttarbót að mínu mati og þess
    vegna erum við að mæla fyrir þessu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>