<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T14:20:46" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 14:23:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T14:20:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="100">
      <ns:málsheiti>stjórnsýslulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætla þvert á móti að leyfa mér að fullyrða
    að nái þetta frumvarp fram að ganga muni beiðnir um forúrskurði eða álit
    EFTA-dómstólsins undir rekstri stjórnsýslumála stóraukast. Ég held að það
    liggi nú alveg fyrir. Ádráttur um það er einmitt gefinn í greinargerð með
    málinu þar sem farið er yfir hvernig Eftirlitsstofnun EFTA hafi haft til
    meðferðar frumkvæðismál varðandi Ísland vegna tilskipunar Evrópuþingsins
    um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða
    einkaaðila kunni að hafa á umhverfið, þ.e. í umhverfismálum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér er einmitt vísað til þess að menn hafa borið það upp að
    umhverfissamtök og náttúrusamtök hafi ekki aðild að dómsmálum á Íslandi
    þegar kemur að umhverfismálum, eða tökum sem dæmi virkjunarframkvæmdir, þá
    hafa ekki allir og amma þeirra aðgang að slíku máli sem aðilar máls. Undan
    þessu kvarta auðvitað svokölluð umhverfisverndarsamtök og hafa viljað geta
    kært sig inn í aðild þessara mála. Það stenst auðvitað ekki nokkra skoðun
    lögfræðilega með tilliti til réttarfars á Íslandi að ótengdir aðilar fái
    slíka aðild. Þá er farin sú leið sem mér sýnist vera farin hér, m.a. með
    þessu frumvarpi, að vinna því í Brussel sem hallaðist á á Alþingi og reynt
    einhvern veginn að koma þessum málum þannig fyrir að undir meðferð á
    stjórnsýslustigi sé hægt að fá afstöðu dómstóla til tiltekinna mála. Ég
    hef af því miklar áhyggjur að m.a. þau mál sem brýnt er að einmitt núna
    næstu misserin verði afgreidd hratt og örugglega — og ég held að það sé
    samstaða um það með ríkisstjórninni og stjórnarandstöðunni að haldið verði
    fast um taumana í þeim efnum — fari að tefjast hér <ns:bjalla/> vegna þess
    að menn kjósa að leita hófanna um einhvers konar annars konar réttlæti í
    Brussel eða í Lúxemborg með forúrskurði EFTA-dómstólsins.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>