<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-10-05T14:23:14" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 14:25:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T14:23:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="100">
      <ns:málsheiti>stjórnsýslulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og ég skil vel hvaðan hv.
    þingmaður er að koma. Þetta er eitt af þessum álitaefnum sem koma oft upp
    og hafa komið upp í tengslum við þetta mál og ég hef sjálf velt þessu
    fyrir mér. Það liggur hins vegar fyrir að við erum aðilar að
    EES-samningnum og það er bæði verkefni dómstóla og stjórnsýslunefnda að
    túlka hann rétt. Þess vegna hefur staðan í Noregi og Liechtenstein verið
    með þeim hætti að þessi kostur hefur verið í boði. Við höfum verið eina
    EES-ríkið sem hefur ekki boðið upp á þennan valkost og eins og ég sagði
    hér áðan, allar hugmyndir um viðbótartöf — þessi kostur hefur verið t.d. í
    boði þegar kemur að kærunefnd útboðsmála síðan 2013 og í tvígang hefur
    hann verið nýttur. Meira að segja þegar kemur að dómstólum almennt skilst
    mér að þetta séu einhver 30 skipti á 20 árum sem dómstólar á Íslandi hafa
    leitað ráðgefandi álits, þannig að það er ekki verið að fylla allt kerfið
    af ráðgefandi álitum í gegnum tíðina. Það er líka þannig að aðilar máls
    geta ekki einhliða krafist þess að slíks álits verði óskað. Það eru
    aðilarnir í stjórnsýslunefndinni sem taka endanlega ákvörðun um það og
    gera það eftir þröngri skilgreiningu um hvort það sé eitthvert vafaatriði
    sem varðar túlkun á EES-samningnum. Minn skilningur, og ég hygg að það
    hljóti að vera útgangspunktur vinnunnar í stjórnskipunar- og
    eftirlitsnefnd, er einmitt að fá það á hreint að þetta sé til þess fallið
    að bæði bæta réttarmeðferð almennt á sviði stjórnsýslunnar og þessarar
    úrskurðarnefndar en líka að koma í veg fyrir tafir síðar í ferlinu ef
    dómum eða úrskurðum er hnekkt ofar í kerfinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>