<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T14:42:29" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 14:44:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T14:42:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="100">
      <ns:málsheiti>stjórnsýslulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætar
    spurningar. Hvað varðar persónuverndarreglugerðina er það rétt að ég
    flutti hér frumvarp til laga um innleiðingu á þeirri reglugerð. Ég gerði
    það einmitt með þeim hætti sem ég tel þann eina boðlega við innleiðingu á
    Evrópu- eða EES-réttinum hér á Íslandi; ég lét þýða þessa reglugerð og hún
    var innleidd hér með sérstökum lögum um persónuvernd. Hún var sem sagt
    ekki innleidd eins og dæmi eru um undanfarin ár, sérstaklega núna á þessu
    kjörtímabili, sem er orðin lenska, að innleiða þessi mál með svokallaðri
    tilvísunaraðgerð, þ.e. að hér er bara lagt fram eitthvert frumvarp sem
    segir að einhver reglugerð úti í heimi sem Evrópusambandið hefur sett
    gildi hér. Og þetta hefur meira að segja verið borið á borð fyrir
    alþingismenn hér inni á Alþingi, jafnvel með þeim hætti að það er vísað í
    reglugerðina sem á að innleiða óþýdda og hún hefur verið birt í lagasafni
    Alþingis á alþingisvefnum. Þegar menn smella á reglugerð birtist þar
    ítrekað óþýdd reglugerð eða tilskipun. Það er algjörlega óboðleg aðferð en
    persónuverndarreglugerðin var sem sagt innleidd með þessum hætti, eins og
    ég segi, og það þýðir að sá texti gildir þá hér á Íslandi. Texti laganna
    gildir. Hann gildir hér. Að mínu mati er það þannig að hafi orðið einhver
    handvömm við þýðinguna, sem kann alveg örugglega að vera, breytir það því
    ekki að sá óskýri texti mun gilda umfram reglugerðartexta sem er
    erlendis.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Aðrar spurningar voru líka góðar og ég ætla að svara þeim, þ.e.
    hvaða breytingar ég gæti séð á þessu frumvarpi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>