<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T14:44:49" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 14:46:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T14:44:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="100">
      <ns:málsheiti>stjórnsýslulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er gott og
    vel að hv. þingmaður sé ánægður með sín störf og sína aðferð við
    innleiðingu á þessari auðtæku löggjöf sem ég tel reyndar að hafi falið í
    sér talsvert meiri gullhúðun en umræðan ber vitni um. En við geymum þá
    umræðu þar til síðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil samt vekja athygli á því, fyrst hv. þingmanni er umhugað um
    sjálfstæði íslenskra úrskurðarnefnda eins og hún hefur látið í veðri vaka,
    að við þessa innleiðingu var úrskurðarvaldi íslenskrar stjórnsýslu og
    íslenska ríkisins alfarið útvistað til framkvæmdastjórnar
    Evrópusambandsins. Þessar niðurstöður eru ekki kæranlegar til
    EFTA-dómstólsins. Þessu væri ég ekki persónulega stolt af í innleiðingu á
    Evrópurétti út frá þeim ramma sem við höfum ákveðið að búa við hér á
    landi. Þetta er ekki í samræmi við íslenskt tvíeðli. En látum það
    vera.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég tel að hér sé um að ræða mikla mótsögn í ljósi þess að hér erum
    við að tryggja einsleitni. Það hlýtur að vera sjálfstætt takmark hverju
    sinni að sama Evrópureglan gildi alls staðar á Evrópska efnahagssvæðinu.
    Ég hef ekki heyrt, og ég bara ítreka beiðni um að fá útskýringar á því,
    hvernig við getum tryggt einsleitni hér á landi með öðrum hætti en lagt er
    upp með í þessu frumvarpi. Ég vil leggja áherslu á það að fyrst hv.
    þingmaður velti upp ákveðinni tortryggni gagnvart því að úrskurðarnefndir
    væru ráðandi aðili í að afla ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins, þá er eitt
    frægasta mál EFTA-réttarins, Restamark-málið mikla, sem ég veit að hv.
    þingmaður þekkir vel, runnið undan rifjum þess að það var úrskurðarnefnd
    sem leitaði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins og kvað upp úr um ráðandi
    réttarreglu um frjálst flæði vöru.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ítreka því spurningu mína: Hvernig tryggjum við einsleitni á
    Evrópska efnahagssvæðinu með ábyrgum hætti þannig að einstaklingar og
    fyrirtæki í landinu líði ekki fyrir?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>