<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T14:47:07" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 14:49:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T14:47:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="100">
      <ns:málsheiti>stjórnsýslulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Dómstólar eiga ekki að setja lög eða reglur.
    Það er ekki hlutverk dómstóla. Úrskurðarnefndir eiga ekki að setja lög eða
    reglur. Það er ekki hlutverk þeirra. Og EFTA-dómstóllinn eða
    Evrópudómstóllinn á svo sannarlega ekki að setja lög og reglur á Íslandi.
    Löggjöfin, lagasetningin, fer fram hér á Alþingi og það er Alþingi sem
    setur reglurnar. Það kann að vera að gerð séu mistök við lagasetningu. Það
    er alþekkt, mörg dæmi um það. Þá er það bara lagað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Af því að hv. þingmaður spyr: Hvernig eigum við að lifa við þessa
    einsleitni, að íslensk lög séu ekki eins og EES-rétturinn? Það er alveg
    rétt, þá bara lögum við það þegar þau vandamál koma upp. Einsleitnin hefur
    ekkert endilega fengist með Evrópudómstólnum eða EFTA-dómstólnum. Mér
    hefur virst þessir dómstólar, Evrópudómstóllinn sérstaklega, bara skipta
    um skoðun og búa til nýjar reglur mörgum árum eftir að reglurnar hafa
    verið settar í Evrópusambandinu. Ég tek sem dæmi reglugerð
    Evrópusambandsins um samræmingu almannatryggingakerfa sem var hér til
    umfjöllunar í fæðingarorlofsmálinu. Það mál var að velkjast um í
    Evrópusambandinu og Evrópusambandsríkjunum, hægri, vinstri og hjá
    Evrópudómstólnum og hann gat ekki einu sinni gefið skýrt svar í fyrsta
    svari sínu heldur tók það mörg ár að breytast. Hv. þingmaður nefnir hér
    persónuverndarlögin, ég er svo sannarlega ekki stolt af þeim, alls ekki.
    Ég tók það sérstaklega fram, þegar ég flutti framsögu um það mál, að það
    væri mjög brýnt að endurskoða þau lög innan mjög skamms vegna þess að þar
    var kastað til höndum af hálfu Evrópusambandsins og settar reglur sem eru
    óaðgengilegar og óframkvæmanlegar öllum ríkjum. Það hefur komið í ljós
    <ns:bjalla/> á Íslandi og annars staðar í Evrópusambandinu. Ég veit ekki
    betur en að Evrópusambandið sé að hysja upp um sig núna og endurskoða allt
    það bákn sem fólst í þeirri reglugerð.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>