<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-10-05T14:55:13" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 14:59:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T14:55:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="133">
      <ns:málsheiti>Hagstofa Íslands og opinber hagskýrslugerð</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á
    lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð. Frumvarpið felur það
    eitt í sér að fella brott skyldu sem í dag hvílir á Hagstofunni um að
    starfrækja sjálfstæða rannsóknareiningu sem ætlað er það hlutverk að
    fylgjast með afkomu þjóðarbúsins, semja þjóðhagsspár og áætlanir og birta
    opinberlega. Hér er því um einföldunarmál að ræða sem gefur færi á að
    styrkja Hagstofuna og efla kjarnastarfsemi hennar án þess að til komi
    aukin útgjöld úr ríkissjóði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ástæða þess að mikilvægt er að fella brott skyldu Hagstofunnar til
    starfrækslu sjálfstæðrar rannsóknareiningar og hætta útgáfu þjóðhagsspáa
    þar er sú að frá og með þessu ári hafa áætlanir í opinberum fjármálum
    byggt á þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands. Þær aðstæður eru því ekki lengur
    fyrir hendi að nauðsynlegt sé að Hagstofan gefi út þjóðhagsspár. Með
    hliðsjón af því er skynsamlegt að fella brott skyldu Hagstofunnar til
    útgáfu þjóðhagsspáa, einfalda starf hennar og koma í veg fyrir tvíverknað
    í starfi hins opinbera.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Áréttað skal að sú breyting sem verður á starfi
    Hagstofunnar, verði frumvarpið að lögum, er einungis sú að þjóðhagsspár á
    vegum hennar munu ekki koma út lengur en Hagstofan mun að sjálfsögðu áfram
    fylgjast með afkomu þjóðarbúsins og sinna öðrum lögbundnum hlutverkum
    sínum. Með þeirri einföldu breytingu sem lögð er til með frumvarpi þessu
    er komið í veg fyrir tvíverknað í starfsemi hins opinbera en undanfarin ár
    hafa bæði Hagstofan og Seðlabankinn gefið út þjóðhagsspár með reglulegum
    hætti. Þessar spár hafa jafnan verið áþekkar og byggja á sama spálíkani
    eða meginspálíkani. Þessi breyting á starfi Hagstofunnar sem frumvarpið
    ber með sér er lögð til í góðu samstarfi og samráði við stofnunina sjálfa.
    Fátítt er að hagstofur í nágrannaríkjunum hafi það hlutverk að gefa út
    þjóðhagsspár, enda er það verkefni utan kjarnaverksviðs þeirra sem felst í
    því að vinna að hagtölugerð og samræma hana þvert á stjórnkerfið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Líkt og rakið er í almennum athugasemdum með frumvarpinu
    á ákvæðið sem hér er lagt til að fellt verði brott uppruna sinn til áranna
    eftir efnahagsáfallið 2008 og þeirra umbóta í umgjörð efnahagsmála og
    hagstjórn sem þá var ráðist í. Var þá talið rétt að fela Hagstofunni sem
    óháðum og sjálfstæðum aðila það hlutverk að gefa út þjóðhagsspár sem nýst
    gætu stjórnvöldum við stefnumótun og hagstjórnarákvarðanir. Á þeim tíma
    sem liðinn er síðan hafa margvíslegar aðrar umbætur verið gerðar í umgjörð
    og stjórn efnahagsmála. Setning nýrra laga um opinber fjármál árið 2015
    var mikið framfaraskref en í þeim er kveðið á um að stefnumörkun í
    opinberum fjármálum, þ.e. fjármálastefna og fjármálaáætlun, skuli byggjast
    á traustum forsendum og gögnum sem unnin eru hlutlægt og kerfisbundið og
    með opinberum hagtölum og þjóðhagsspá. Frá setningu þeirra árið 2015 og
    allt fram til ársins 2026 hafa þjóðhagsspár Hagstofunnar verið lagðar til
    grundvallar þessari stefnumörkun. Líkt og fram hefur komið byggjast
    forsendur fjármálastefnu og fjármálaáætlunar nú á þjóðhagsspám sem
    Seðlabanki Íslands birtir samkvæmt ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra.
    Það þýðir einnig að stefna í opinberum fjármálum og peningastefnan
    byggjast nú á sömu forsendum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Það er mitt mat að umgjörð um mótun efnahagsstefnu
    stjórnvalda hafi styrkst við þetta enda fylgja því ótvíræðir kostir að
    þessir tveir armar hagstjórnarinnar, fjármálastefnan og peningastefnan,
    byggi ákvarðanir sínar á sömu grunnforsendum. Seðlabankinn birtir
    ítarlegar þjóðhags- og verðbólguspár fjórum sinnum á ári en auk þess birta
    stóru viðskiptabankarnir þrír einnig reglulega þjóðhagsspár auk
    alþjóðastofnana á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Brotthvarf
    þjóðhagsspáa Hagstofunnar hefur því enga grundvallarbreytingu í för með
    sér fyrir aðra notendur þjóðhagsspáa og er án allra vandkvæða fyrir
    stjórnvöld.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Að endingu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað til
    efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>