<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T14:59:52" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:02:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T14:59:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="133">
      <ns:málsheiti>Hagstofa Íslands og opinber hagskýrslugerð</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir
    framsögu um þetta mál sem kann að vera hið besta mál. Mig langar hins
    vegar að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort það sé ekki tilefni til að
    spara smá peninga með þessu. Ég sé að í mati á áhrifum í frumvarpinu er
    nefnt að það verði komið í veg fyrir tvíverknað með því að leggja niður
    rannsóknareiningu Hagstofunnar og fjármunum og sérhæfðum mannauði verði
    varið með skynsamlegri hætti en áður. Hefur hæstv. forsætisráðherra
    einhverja hugmynd um hvar sú skynsemi muni liggja í framtíðinni?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo langar mig líka að spyrja um annað sem tengist kannski
    Hagstofunni ekki beint eða þessu máli. Jú, það tengist auðvitað þessu máli
    þegar verið er að leggja niður þjóðhagsspá og einhverja líkanasmíði
    þessarar ríkisstofnunar. Á sama tíma er nefnt að fjármála- og
    efnahagsráðuneytið hafi ritað undir samkomulag við Seðlabanka Íslands í
    upphafi þessa árs sem felur í sér að Seðlabankinn muni veita ráðuneytinu
    upplýsingar sem liggja að baki spám bankans um hagstærðir sem hafa hingað
    til ekki verið birtar opinberlega en ráðuneytið notar í áætlunum
    sínum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég er aðeins að velta fyrir mér hvort aðhald fjármálaráðuneytisins
    sé kannski einhvern veginn fyrir borð borið með því að leggja niður þessa
    starfsemi Hagstofunnar, þótt auðvitað megi segja: Ja, Hagstofan er
    náttúrlega undir hæstv. forsætisráðherra og Seðlabankinn kannski að
    einhverju leyti líka en þó er annars konar samstarf á milli
    fjármálaráðuneytisins og Seðlabankans. Ég bara velti fyrir mér hvort
    hæstv. forsætisráðherra geti velt fyrir sér þessu aðhaldi með
    fjármálaráðuneytinu og hvort það <ns:bjalla/> verði hafið yfir alla
    gagnrýni og allan vafa að þau gögn sem þannig flæða á milli Seðlabankans
    og fjármálaráðuneytisins séu trúverðug.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>