<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-10-05T15:02:26" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:04:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:02:26">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="133">
      <ns:málsheiti>Hagstofa Íslands og opinber hagskýrslugerð</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góðar spurningar og
    umræðu. Það var ástæða fyrir því að við ákváðum m.a. að fara þá leið að
    halda eftir þessu fjármagni hjá Hagstofunni. Við höfum tiltölulega nýlega
    fengið skýrslu hagtalnanefndar þar sem voru tillögur til forsætisráðherra
    um að efla Hagstofuna. Ég held að það liggi alveg fyrir að fólk getur
    auðvitað alltaf haft skoðanir á aðhaldi ríkisstofnana og það þurfi að
    passa upp á það. En við vitum og ég held að flestir átti sig á því að gæði
    lykilafurða Hagstofunnar þurfi að bæta og þau hafa verið að vinna að því,
    m.a. við uppbyggingu á nýju framleiðsluuppgjöri, með breytingu á
    uppgjörsaðferð vegna þjóðhagsreikninga og það er í rauninni bara
    risauppfærsla sem hefur verið unnið að upp á síðkastið til þess að bæta
    ráðstöfunaruppgjör og gæði hagtalna. Það hefur verið mjög þröngt hjá
    Hagstofunni varðandi fjárráð, það liggur alveg fyrir. Ég held að flestir
    sem hafa setið í hv. fjárlaganefnd þekki þá sögu. Forsætisráðuneytið hefur
    gert það sem ráðuneytið getur með sinn fjárhagsramma, stundum sett
    verkefnafé að hluta til til Hagstofunnar þegar þörf hefur verið á. Það
    hefur líka þurft að bæta t.d. hagtölur um vinnumarkað og hefur reglulega
    þurft að bæta við þar, þar eru aukin verkefni, það þarf að bæta
    mannfjöldatalningu og fleira. Við vorum með þessa smáu rannsóknareiningu
    þannig að það var tekin sú ákvörðun í rauninni að hagræða innbyrðis með
    þeim hætti í staðinn fyrir að setja aukið fjármagn til Hagstofunnar; nýta
    þetta tækifæri og færa þá starfsígildi sem voru að fara í þessa vinnu í
    aðra vinnu sem myndi skila meira í rauninni fyrir stofnunina og fyrir hið
    opinbera.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er mjög eðlileg spurning um samkomulagið sem var gert við
    Seðlabanka Íslands. Í fyrsta lagi er það kostnaðarlaust og í öðru lagi
    koma í rauninni svona aðeins ítarlegri upplýsingar á bak við suma af þeim
    gagnapunktum sem ríkið þarf til að útfæra sína spá. En ég get tryggt það
    hér í þessari pontu að Seðlabankinn fer mjög varlega með sitt hlutverk,
    vill enga skörun þarna á milli þegar kemur að upplýsingaflæði og hefur í
    rauninni, <ns:bjalla/> ef eitthvað er, afmarkað mjög þröngt þann
    talnaramma sem ríkið hafði aðgengi að öðru leyti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>