<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T15:04:53" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:06:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:04:53">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="133">
      <ns:málsheiti>Hagstofa Íslands og opinber hagskýrslugerð</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það sem ég vildi kannski sagt hafa í fyrra
    andsvari mínu er hvort það sé hafið yfir allan vafa að fjármála- og
    efnahagsráðuneytið muni eftirleiðis sjálft sjá um spár, m.a. um þróun komu
    erlendra ferðamanna og launavísitölu, sem Hagstofan hefur hingað til spáð
    og er ekki hluti af opinberri útgáfu Seðlabankans, og fleiri stærðir.
    Ætlunin er sem sagt að ráðuneytið muni framvegis áætla þessar tölur með
    hliðsjón af spá Seðlabankans. Ég er bara að velta fyrir mér hvort það sé
    nokkur hætta á að það komi upp einhver trúverðugleikavandi, vildi ég sagt
    hafa, varðandi vinnu fjármálaráðuneytisins að þessu leyti, ef
    fjármálaráðuneytið ætlar sjálft að leggja til grundvallar forsendur fyrir
    sinni tillögugerð til ríkisfjármálanna sem er lögð fyrir Alþingi. Það er
    bara þetta sérstaklega sem mér þætti vænt um að hæstv. forsætisráðherra
    gæti aðeins fjallað um af því að bæði sjá betur augu en auga í þessum
    efnum og svo er líka svolítið ankannalegt að ráðuneytið sem ætlar að vinna
    að sinni stefnumörkun búi sér til forsendurnar sjálft.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>