<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-10-05T15:06:58" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:09:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:06:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="133">
      <ns:málsheiti>Hagstofa Íslands og opinber hagskýrslugerð</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það var tekin talsverð umræða um þetta þegar það voru
    gerðar breytingar í fjármálaáætlun á sínum tíma og bara mjög eðlileg
    umræða því þetta skiptir lykilmáli. Í grófum dráttum var þetta þannig að
    hagspáin sem kom frá Hagstofunni var opinber. Hún var með svona helstu
    þætti þjóðhagsreikninga en síðan eru ákveðnir undirliðir á bak við sem eru
    kannski ekki allir birtir opinberlega en nýtast í frekari spágerð í
    fjármálaráðuneytinu. Það er ýmislegt sem fjármálaráðuneytið gerir í
    aðdraganda fjármálaáætlunar og fjárlaga, m.a. varðandi tekjuþróun,
    útgjaldaþróun og fleira svoleiðis sem er bara spágerð og hefur alltaf
    verið á vegum fjármálaráðuneytisins. En það sem snýr að þjóðarhagnum
    sérstaklega hefur verið hjá Hagstofunni og það eru ákveðnir undirliðir sem
    svona dælast þar inn og skapa lokaniðurstöðu. Og alveg eins og
    fjármálaráðuneytið fékk aðgengi að því hjá Hagstofunni þá fær ráðuneyti
    hluta af því frá Seðlabankanum í dag. En eins og ég sagði passar
    Seðlabankinn mjög mikið upp á sjálfstæði sitt og það var rætt mjög mikið
    fram og til baka hvað væri einmitt eðlilegt upplýsingaflæði þarna á bak
    við. En þetta er bara til þess fallið í rauninni að fjármálaráðuneytið
    geti unnið sömu vinnu og það gerði áður, unnið úr tölum Hagstofunnar í
    eigin spágerð sem er byggð á grundvallarforsendum þjóðhagsspár. En eins og
    ég segi, það er heilmikið í fjárlagagerð sem er á spáhliðinni, ef kalla má
    það svo, sem hafa alltaf í gegnum tíðina verið útreikningar
    fjármálaráðuneytisins, staðgreiðslugögn og annað slíkt sem er verið að
    miða við.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er bara holl og góð umræða og ég hygg að það verði bara mjög
    jákvætt á næstu árum að sjá hvernig nýting á þessum spám hefur verið. En
    eins og ég segi, mér hafa kannski þótt mest sannfærandi rökin fyrir
    þessari breytingu þau að þetta var lítil spáeining, rannsóknareining, og
    hún byggði á meginlíkani Seðlabankans þannig að það var kannski ekki mikil
    viðbót sem kom þarna inn. Hagstofan, sem hefur farið úr um 126
    starfsmönnum frá 2020 í 98 í dag, 30% fækkun, hefur ekki minnkað að
    verkefnaumfangi og þarf einfaldlega á öllu að halda núna varðandi
    starfsfólk.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>