<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-10-05T15:09:35" skst="DMK" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:11:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:09:35">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="155">
      <ns:málsheiti>varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um varfærniskröfur
    til verðbréfafyrirtækja. Frumvarpinu er ætlað að innleiða tvær
    Evrópugerðir um sama efni, en það var lagt fram á síðasta löggjafarþingi
    en hlaut ekki afgreiðslu. Með frumvarpinu eru varfærniskröfur til
    verðbréfafyrirtækja í megindráttum skildar frá varfærniskröfum til banka
    og annarra lánastofnana. Með þessu móti er betur tekið tillit til sérstöðu
    hvorrar tegundar fyrirtækja fyrir sig og unnt að hafa einfaldari og
    markvissari löggjöf fyrir verðbréfafyrirtæki en gæta jafnframt um leið að
    fjármálastöðugleika. Gerðar eru lágmarkskröfur um eigið fé og laust fé,
    settar eru reglur um stjórnarhætti og starfskjör, mælt er fyrir um
    birtingu upplýsinga og kveðið á um eftirlit Fjármálaeftirlitsins og
    viðurlög vegna brota.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Í öllum helstu atriðum endurspeglar frumvarpið ákvæði
    Evrópugerðanna. Þó er lagt til að stærri fjármálafyrirtækjum verði áfram
    skylt að hafa innri endurskoðun þar sem hún er talin liður í því að
    treysta áhættustýringu og stjórnarhætti. Einnig er lagt til að hámark
    breytilegra launa í stærri verðbréfafyrirtækjum verði óbreytt frá því sem
    nú gildir, eða 25% af föstum launum, og að áfram verði óheimilt að greiða
    stjórnarmönnum þeirra breytileg laun.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sjö verðbréfafyrirtæki starfa nú á Íslandi. Verði frumvarpið að
    lögum dregur það úr reglubyrði þeirra án þess þó að koma niður á
    viðnámsþrótti fjármálakerfisins, enda felur það í sér að
    verðbréfafyrirtækin falli undir lagaramma sem er sérsniðinn að þeim en
    ekki að starfsemi lánastofnana. Talið er að eitt eða tvö
    verðbréfafyrirtæki kunni þó að þurfa að auka eigið fé til að mæta nýjum
    kröfum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Innleiðing Evrópugerðanna er liður í því að uppfylla
    skyldur Íslands samkvæmt EES-samningnum og greiða fyrir þátttöku íslenskra
    fyrirtækja á hinum sameiginlega markaði Evrópska
    efnahagssvæðisins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og
    viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu. F</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>