<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-10-05T15:12:40" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:22:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:12:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um
    breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, um reglubundnar breytingar á
    leigufjárhæð. Frumvarpið er lagt fram á grundvelli stefnuyfirlýsingar
    ríkisstjórnarinnar um að styrkja stöðu leigjenda og setja heimilin í
    forgang. Það er jafnframt liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að
    greiða fyrir því að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði haldi. Með
    frumvarpinu er boðuð sú grundvallarbreyting að banna mánaðarlega
    vísitölutengingu á leiguverði á samningstíma. Sú aðgerð var kynnt sem
    lykilatriði í öðrum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar í vor.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Meginmarkmið frumvarpsins er að auka húsnæðisöryggi, minnka vægi
    verðtryggingar og skapa leigjendum aukinn fyrirsjáanleika um þróun
    húsnæðiskostnaðar. Leigumarkaðurinn hér á landi hefur um árabil einkennst
    af mikilli óvissu og skertu húsnæðisöryggi leigjenda. Gögn úr leiguskrá
    HMS sýna að um 63,5% allra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eru verðtryggðir
    með vísitölu neysluverðs. Þar af eru heil 94,5% þeirra samninga með
    mánaðarlegri vísitölubindingu. Þetta þýðir á mannamáli að langflestir
    leigjendur með verðtryggða samninga standa frammi fyrir því að húsaleigan
    hækkar í hverjum einasta mánuði í takt við verðbólgu. Þetta veldur ekki
    aðeins stöðugu óöryggi á heimilum leigjenda heldur hefur þessi mánaðarlega
    sjálfvirka hækkun einnig bein uppsöfnuð áhrif á verðbólguna sjálfa.
    Reiknuð húsaleiga í vísitölu neysluverðs byggist á raungögnum úr
    leiguskránni og mánaðarlegar hækkanir ýta þannig undir verðbólguhjólið. Á
    undanförnum 12 mánuðum hefur vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu
    hækkað um 4,74%. Verðbólga hefur verið yfir 5% frá áramótum og stendur nú
    í 5,9%. Stýrivextir Seðlabankans standa í 8%. Við þessar aðstæður er brýnt
    að stjórnvöld beiti sér af afli til að draga úr sjálfvirkri kyndingu
    verðbólgunnar, minnka vægi verðtryggingar og auka efnahagslegan
    stöðugleika. Með þessu frumvarpi er stigið stórt og afgerandi skref í þá
    átt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég mun nú gera grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins. Í
    fyrsta lagi er lagt til að settur verði skýr rammi um svokallaðar
    tröppuhækkanir, þ.e. reglubundnar breytingar á leigufjárhæð á
    samningstíma. Í nýrri 37. gr. a er lagt til að aðeins verði heimilt að
    semja um slíkar hækkanir í upphafi við gerð leigusamnings og að aðilar
    verði að velja eitt af þremur viðmiðum: Í fyrsta lagi breytingu til
    samræmis við vísitölu neysluverðs til verðtryggingar, í öðru lagi fyrir
    fram umsamið fast hlutfall af leigufjárhæð og í þriðja lagi fyrir fram
    umsamda fasta fjárhæð. Með þessu er sérstaklega girt fyrir það að
    samningsaðilar geti samið um margþættar eða samsettar hækkanir, eins og að
    hækka leigu bæði um fasta fjárhæð og vísitölu á sama tíma. Dæmi um slíkt
    má því miður finna á leigumarkaðnum og reyndar víðar. Sem dæmi er nú til
    meðferðar fyrir Evrópudómstólnum mál um ólögmæti samningsskilmála um
    verðtryggingu leigu samhliða allt að 7% árlegri hækkun. Með þessu
    frumvarpi er tekin skýr afstaða gegn slíkri framkvæmd.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í öðru lagi er lagt til að sett verði hámarksþak reglubundinna
    hækkana leigufjárhæðar. Í því felst að breytingar um fast hlutfall eða
    fasta fjárhæð geta aldrei leitt til meiri hækkunar en sem nemur breytingu
    á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar á sama tímabili. Komi til þess
    að umsamin hækkun fari fram úr vísitöluhækkun skal leigan því miðast við
    vísitöluna. Þannig er komið í veg fyrir óhóflegar og bersýnilega
    ósanngjarnar hækkanir á leiguverði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þriðja lagi er lögfest sú grundvallarregla að tólf mánuðir að
    lágmarki skuli líða á milli reglubundinna breytinga á leigufjárhæð, talið
    frá gildistöku samnings eða síðustu breytingum. Mánaðarlegar
    vísitöluhækkanir á leigu verða þar með alfarið óheimilar. Leigufjárhæð mun
    því að hámarki geta tekið breytingum einu sinni á ári. Þetta mun gjörbylta
    fyrirsjáanleika leigjenda um mánaðarlegan húsnæðiskostnað sinn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Til að markmið frumvarpsins náist er í fjórða lagi lagt til að
    heimild til að víkja frá ákvæðum húsaleigulaga í leigusamningum um
    atvinnuhúsnæði taki ekki til ákvæða VII. kafla húsaleigulaga um ákvörðun
    leigufjárhæðar og breytingar á henni. Samhliða verði hnykkt á því að sú
    grundvallarregla húsaleigulaga að ákvæði laganna séu ófrávíkjanleg þegar
    um er að ræða leigu á íbúðarhúsnæði nái einnig til þess þegar annað
    húsnæði er leigt til íbúðar. Þannig verði öllum heimilum á leigumarkaði
    tryggð sama réttarvernd húsaleigulaga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Rétt er að geta þess að frumvarpið var prentað
    upp í dag til að koma að þessum tveimur breytingum sem eru, sem fyrr
    greinir, nauðsynlegar til að markmið frumvarpsins náist. Þessu tengt er
    einnig lagt til að fella niður heimild áfangaheimila og námsmannafélaga
    til að semja sig frá ákvæðum VII. kafla húsaleigulaga um ákvörðun og
    breytingar á leigufjárhæð. Reynslan hefur sýnt að þessi undanþága hefur í
    einhverjum tilvikum verið nýtt til að skerða réttindi leigjenda sem standa
    höllum fæti. Réttarvernd þessa hóps verður þannig tryggð til jafns við
    aðra leigjendur á markaði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í fimmta lagi er lagt til að auka gagnsæi á leigumarkaði um
    markaðsleigu og breytingar á leigufjárhæð. HMS er falið að birta
    upplýsingar úr leiguskrá um markaðsleigu eftir staðsetningu, stærð, aldri
    og gerð húsnæðis. Einnig mun stofnunin halda úti reiknivél til að auðvelda
    aðilum útreikning á lögmætum leigubreytingum. Jafnframt verður lögfest að
    skrá verði lagagrundvöll leigubreytinga í leiguskrána.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í sjötta lagi er kveðið á um gildistöku og nauðsynleg
    bráðabirgðaákvæði. Lagt er til að lögin taki gildi 1. júlí 2027 gagnvart
    öllum nýjum leigusamningum. Gagnvart eldri leigusamningum um íbúðarhúsnæði
    og annað húsnæði sem leigt er til íbúðar sem enn verða í gildi 1. júlí
    2028 tekur hið nýja regluverk gildi á þeim degi. Aðilum gefst því ríflegur
    tími til að semja um nýtt fyrirkomulag. Takist það ekki getur leigusali
    krafist árlegrar breytingar samkvæmt vísitölu neysluverðs en þó aldrei
    umfram það sem leigjandi hefði greitt samkvæmt upprunalegum samningi ef sú
    hækkun reynist lægri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Með öllum þessum samhangandi breytingum erum við í raun að
    lögfesta trausta og vel útfærða leigubremsu á íslenskum húsnæðismarkaði,
    sanngjarna og málefnalega bremsu sem stöðvar sjálfvirkar mánaðarhækkanir
    og veitir leigjendum það öryggi og fyrirsjáanleika sem þeir eiga rétt á.
    Við undirbúning þessa frumvarps var sérstaklega gætt að samræmi við
    stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar, einkum vernd eignarréttar
    samkvæmt 72. gr. stjórnarskrárinnar og 1. gr. 1. samningsviðauka
    mannréttindasáttmála Evrópu. Fyrirliggjandi lögfræðileg greining og
    dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu staðfesta að almennar
    takmarkanir á afnotarétti og samningsfrelsi um leigufjárhæð teljast
    lögmætar þegar það þjónar ríkum almannahagsmunum, enda sé gætt
    meðalhófs.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér er um að ræða almennar leikreglur sem stuðla að félagslegri
    vernd og réttaröryggi á grundvallarsviði sem snertir frumþörf hvers manns:
    að eiga öruggt heimili. Leigusalar halda eignarréttindum sínum og tryggður
    er réttur til sanngjarns endurgjalds og eðlilegra breytinga á leigu með
    árlegu millibili. Samkvæmt mati á áhrifum frumvarpsins er gert ráð fyrir
    að fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð verði óveruleg. Nauðsynlegar breytingar á
    kerfum og upplýsingamiðlun hjá HMS munu rúmast innan núverandi
    rekstrarramma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað jafnréttisáhrif varðar liggur fyrir að konur eru í meiri
    hluta þeirra sem leigja húsnæði hér á landi. Greiningar sýna jafnframt að
    heimili einstæðra foreldra, þar sem konur eru í meiri hluta, eru líklegri
    en önnur til að búa við þröngan efnahag. Aukið húsnæðisöryggi, skýrari
    reglur og afnám mánaðarlegra verðbólguhækkana á leigu munu því hafa
    sérstaklega jákvæð áhrif á þessa hópa og stuðla að jöfnuði í
    samfélaginu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þær aðgerðir sem ég hef hér rakið mynda saman raunverulega og
    réttláta leigubremsu sem verndar heimilin fyrir stjórnlausum hækkunum og
    stöðugu óöryggi. Með þessu frumvarpi er tekið á brýnum vanda á
    leigumarkaði af festu og ábyrgð. Við erum að tryggja að fólk geti gengið
    að því vísu hvað það greiðir í húsaleigu í heilt ár í senn í stað þess að
    búa við óvissu í hverjum mánuði og við dempum á sama tíma
    verðbólguhvetjandi áhrif leigukerfisins. Þannig styrkjum við stöðu
    leigjenda á réttlátan og málefnalegan hátt. Ég tel að þær lagabreytingar
    sem hér hafa verið kynntar feli í sér mikilvæga réttarbót fyrir samfélagið
    allt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað
    til hv. velferðarnefndar og til 2. umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>