<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T15:22:46" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:23:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:22:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil í upphafi þakka hæstv. ráðherra fyrir sína
    framsögu á þessu máli sem er athyglisvert fyrir margra hluta sakir. Hér er
    hoggið býsna nærri samningsfrelsinu í þessum tilgangi sem að er stefnt. Ég
    hef áhuga á því að ræða það við hæstv. ráðherra hvort hann hafi engar
    áhyggjur af því að frumvarp eins og þetta, aðgerðir eins og þessar,
    neyslu- og verðstýring, muni einfaldlega hamla framboði, minnka framboð,
    minnka hvata til að byggja og til að setja íbúðir í leigu. Reynslan
    erlendis frá sýnir akkúrat af hverju úrræði sem þetta virkar ekki.
    Vissulega þjónar það hagsmunum þeirra leigutaka sem eru nú þegar í kerfinu
    en fyrir alla hina sem eru ekki komnir í leiguhúsnæði — þeir líða í
    rauninni fyrir þetta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>