<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-10-05T15:24:05" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:25:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:24:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna.
    Einfalda svarið er nei. Þessi breyting felur í sér réttarvernd sem er
    líkari því sem við þekkjum t.d. á Norðurlöndunum. Það er alveg rétt sem
    hv. þingmaður segir, að það eru auðvitað dæmi þess að miklar hömlur og
    verðstýring á leigumarkaði, þegar gengið er of langt í þeim efnum, hafi
    vissulega haft áhrif á framboð en ég tel það algerlega útilokað að
    breyting sem þessi geri það, þetta er einfalt sanngirnismál,
    lágmarksréttarvernd til þeirra sem eru á leigumarkaði og hafa þurft að
    þola nánast stjórnlausar hækkanir umfram vísitölu síðustu ár og
    áratugi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>