<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T15:25:14" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:26:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:25:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég hygg að við
    séum ósammála um þetta. Ég ætla að færa mig í næsta mál. Það er í raun og
    veru áhrifamat á frumvarpinu sjálfu og það er viðurkennt hér í 6. kafla
    greinargerðarinnar að það sé gert ráð fyrir því að grunnfjárhæð leigu
    uppfærist í samræmi við framtíðarvæntingar. Hún er reiknuð í upphafi. Ég
    vil nefna þetta og setja í samhengi sérstaklega við Byggingafélag
    námsmanna, Félagsbústaði, Félagsstofnun stúdenta, aðila sem eru að leigja
    íbúðir til mjög skamms tíma til hóps sem fær úthlutað húsnæði á sérstökum
    forsendum, til að mynda á grundvelli þess að viðkomandi sé að stunda nám
    og þurfi að skila námsárangri til að halda íbúðinni. Hver verða áhrifin af
    þessu á annars vegar leigufélögin sjálf sem eru í þessari stöðu, eru ekki
    hagnaðardrifin, eru einfaldlega að reka sig á núllinu og svo hins vegar á
    stúdentana <ns:bjalla/> sem þurfa að greiða hærri leigu sökum þess að
    leigusalinn þarf að áætla verðbólguna til framtíðar?</ns:mgr>

    <!--segir "ekki óhagnaðardrifin", sem passar ekki, eru einmitt óhagnaðardrifin/st.-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>