<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-10-05T15:26:41" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:27:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:26:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurningu.
    Nú þegar er óheimilt að hækka leigu fyrstu 12 mánuðina þegar gerðir eru
    nýir leigusamningar. Það virðist ekki hafa teljandi áhrif á þá sem stunda
    viðskipti á þessum markaði. Ég hef sjálfur komið að uppbyggingu og rekstri
    óhagnaðardrifins félags sem hefur starfað í þessu umhverfi við góðan
    orðstír og ég get fullvissað hv. þingmann um að þessar takmarkanir sem við
    erum að boða hér í þessu frumvarpi hefðu ekki neikvæð áhrif á rekstur þess
    félags eða teljandi áhrif á verðlagningu í þeim samningum sem gerðir eru í
    upphafi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>