<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T15:27:45" skst="KÞS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:28:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:27:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að
    leggja fram þetta frumvarp hérna í dag. Þetta skiptir gríðarlega miklu
    máli fyrir leigumarkaðinn, að ég tel, til þess að ná betri tökum á honum.
    Við erum auðvitað búin að gera nokkrar breytingar á húsaleigulögum sem
    skipta verulegu máli, varðandi skráningarskylduna, bindinguna til að byrja
    með, og núna erum við að taka þetta skref sem ég tel að sé mjög mikilvægt.
    Eitt sem mig langaði að fá fram hjá hæstv. ráðherra er varðandi áhrif á
    leiguverð. Þetta getur dempað leiguverðið til lengri tíma litið, sem ég
    tel að sé mikilvægt. Síðan langar mig aðeins að spyrja út í kærunefnd
    húsamála og hvort það væri tilefni til þess að efla stuðning við
    kærunefndina líka.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>