<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-10-05T15:28:58" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:30:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:28:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna.
    Varðandi kærunefnd húsamála þá höfum við nú þegar eflt hana til mikilla
    muna. Það stendur til að gera betur þar sem við erum líka að boða í
    þingmálaskrá breytingar á tryggingarfyrirkomulagi húsaleigu þar sem yfir
    90%, ef ekki 95%, þeirra mála sem kærunefnd húsamála tekur til snúast um
    ágreining leigusala og leigutaka um uppgjör á tryggingarfé. Það yrði
    gríðarleg bót fyrir réttarstöðu leigjenda á markaði að við vinnum það mál
    hratt og vel og sömuleiðis gæfi það líka kærunefnd gríðarlega mikið og
    gott svigrúm til að sinna þá fleiri og brýnni málum, t.d. þeim sem koma
    upp varðandi ágreining um húsaleigufjárhæðir og breytingar á
    þeim.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>