<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T15:30:10" skst="KÞS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:31:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:30:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og ég bara
    fagna því og tek undir mikilvægi þess að við séum að styrkja þetta af því
    að það hefur alveg sýnt sig að það veitir ekki af að hafa þennan hluta vel
    fúnkerandi eða virkan á markaði til þess að styðja við leigjendur. Það sem
    síðan skiptir auðvitað rosalega miklu máli í mínum huga þegar maður horfir
    á frumvarpið er þessi sjálfvirkni sem kemur inn í þetta. Við erum með
    þetta samfélag okkar sem er ofboðslega mikið vísitölutengt og nú erum við
    í raun og veru að stíga skref til að draga úr vægi verðtryggingar sem ég
    tel auðvitað gríðarlega mikilvægt skref að taka. Þessi hluti, sökum þess
    að hann hefur núna almennt verið að hækka mánaðarlega, hefur skilað sér
    með reglubundnum hætti. Getum við ekki átt von á því að með þessu verði
    betri dreifing einmitt á þeim hækkunum sem koma til og þá einu sinni á ári
    í stað þess <ns:bjalla/> að fá mánaðarlegar breytingar? Það gæti þar af
    leiðandi dregið úr verðbólgu sem skiptir gríðarlega miklu máli.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>