<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-10-05T15:31:31" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:32:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:31:31">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurningu.
    Það er alveg rétt að þegar vísitölugrunninum var breytt þá hefur reiknaður
    húsnæðiskostnaður verið inni í vísitölunni. Þar liggur leigumarkaðurinn
    nánast undir en ekki verðmyndun eins og var og þess vegna er í sjálfu sér
    alveg fáránlegt að við skulum vera með kerfi eða í rauninni vísitölugrunn
    sem mælir húsaleigu sem er verðtryggð á þann hátt að hún breytist
    mánaðarlega og þær verðbætur sem koma ofan á leiguverðið fá svo aftur á
    sig verðbætur mánuðinn eftir. Þetta er auðvitað hluti af stærra verkefni
    sem ríkisstjórnin er að fara í, að minnka vægi verðtryggingar í íslensku
    samfélagi og þetta er auðvitað risastórt skref í þá átt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>