<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T15:32:47" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:34:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:32:47">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í
    þetta samráð sem fór fram í skötulíki og gerð er grein fyrir í
    frumvarpinu. Það sem vekur athygli mína er að þetta mál hafi ekki verið
    sent í neitt samráð nema það sem hér er greint, sem er innra samráð
    ráðuneyta, og þess utan var haft samráð við fjármála- og
    efnahagsráðuneytið og Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. En í
    ljósi þeirra breytinga sem hér um ræðir hafi ráðherra talið að áform um
    lagasetninguna, eða drög að frumvarpi, mætti ekki kynna í samráðsgátt þar
    sem slíkt gæti hvatt til leiguverðshækkana fram að gildistöku
    breytinganna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hlýt að spyrja í fyrsta lagi: Hvað kom út úr samráðinu við
    Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun? Og hins vegar: Hvaða hugmyndir
    hefur hæstv. ráðherra um meðferð þessa máls í þinginu ef hann <ns:bjalla/>
    heldur að þetta mál verði afgreitt þannig að það geti ekki haft áhrif á og
    leitt til leiguverðshækkana fram að gildistöku breytinganna? Hefur hæstv.
    ráðherra einhverjar sérstakar hugmyndir um flýtimeðferð þessa
    máls?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>