<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-10-05T15:34:21" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:35:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:34:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna.
    Hugmyndin að þessari leigubremsu er ekki ný af nálinni. Hún hefur verið
    sem tillögur í tveimur mjög viðamiklum samráðshópum um aðgerðir á
    húsnæðismarkaði, starfshópum fyrri ríkisstjórna, og eru þessar tillögur
    svo sem ekkert nýjar af nálinni. Við gerð og útfærslu frumvarpsins var
    haft víðtækt samráð við bæði fjármálaráðuneytið og Húsnæðis-, mannvirkja-
    og skipulagsstofnun, sem er undirstofnun okkar ráðuneytis í húsnæðismálum,
    sömuleiðis aðila vinnumarkaðarins eða verkalýðshreyfinguna sem innlegg í
    endurskoðun kjarasamninga, sömuleiðis samtök eins og Leigjendasamtökin. En
    ég og hv. þingmaður deilum auðvitað áhuga á húsnæðismarkaði og orlofshúsum
    stéttarfélaga ásamt fleiru en kannski á mismunandi hátt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>