<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T15:35:51" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:37:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:35:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra svaraði í engu spurningu
    minni. Spurning mín lýtur að því af hverju ekki var haft víðtækt samráð í
    samráðsgátt áður en þetta frumvarp var lagt fram. Hæstv. ráðherra reifar
    hér að málið sé margkynnt og menn hafi allir haft hugmynd um hugmyndir
    ríkisstjórnarinnar um þessa leigubremsu sem er auðvitað eitt
    allsherjardellumál svona heilt yfir og á eftir að ræða hér. En í því
    ljósi, hvernig standast þá þessi ummæli í greinargerð frumvarpsins um að
    það hafi ekki mátt fara í samráð vegna þess að það gæti haft áhrif á
    hækkun leiguverðs gildandi samninga? Ég bara botna ekki neitt í þessu. Ég
    spyr hæstv. ráðherra: Af hverju fór málið ekki í hefðbundið samráðsferli
    eins og öll mál ríkisstjórnarinnar eru lögbundin til þess að gera og
    sérstaklega þegar við á um svona stórt mál? Af hverju fór það ekki í
    samráðsferli? Hver er ástæðan fyrir því? Í framhaldinu: Heldur hæstv.
    ráðherra að þetta mál fljúgi hér í gegn á einum degi? Að umræða um þetta
    mál hér á þingi kunni ekki að hafa þessi áhrif sem hæstv. ráðherra hefur
    svona miklar áhyggjur af og greint er frá í greinargerð með frumvarpinu?
    Hvaða hugmyndir hefur hæstv. ráðherra um þinglega meðferð málsins? Af
    hverju fór það ekki í samráð?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>