<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-10-05T15:37:10" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:38:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:37:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari
    spurninguna. Það er alls ekki svo að öll mál, hvort sem það eru mál
    ríkisstjórnarinnar eða ekki, fari í sérstakt samráð. Það er bara alls ekki
    þannig og hv. þingmaður veit það. Ég get alla vega sagt að þessar
    hugmyndir, og ég bara ítreka það, um takmarkanir á leigufjárhæð og hækkun
    á leigu með þessum hætti, eru ekki nýjar af nálinni og hafa verið ræddar
    yfir lengra skeið. Ég get fullvissað hv. þingmann um að það samráð sem þó
    var haft er í sjálfu sér í samræmi við þá vinnu sem hefur verið unnin hér
    í tveimur risastórum starfshópum fyrri ríkisstjórna. Eina ástæðan fyrir
    því að frumvarpið er ekki sett í samráðsgátt er vegna mögulegra áhrifa á
    markaðinn. Það er bara lagt fyrir þingið þegar það er tilbúið. Það var
    gert með þessum hætti, sem er ekki einsdæmi og langt frá því. Ég get
    fullvissað hv. þingmann um að ég ber fulla virðingu fyrir þinglegri
    meðferð og ég treysti hv. velferðarnefnd til að vinna þetta mál vel og
    faglega og fá til þess aðila til umsagnar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>