<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T15:38:48" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:40:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:38:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra Ragnari Þór
    Ingólfssyni fyrir framsögu sína og fyrir að leggja þetta mál fram. Ég tel
    þetta mál mjög mikilvægt til að tryggja stöðugleika og réttarvernd
    leigjenda, sérstaklega á almennum leigumarkaði. Við verðum auðvitað að
    horfast í augu við það sem stjórnmálamenn að ekki allir eiga sitt eigið
    húsnæði og það er mjög mikilvægt að við gerum það sem við getum til að
    tryggja réttarvernd þeirra sem eru á almennum leigumarkaði. Mig langaði að
    spyrja hæstv. ráðherra sérstaklega, af því að það kom fram í framsögu
    hans, varðandi misnotkun eða það að óhagnaðardrifin félög hafi nýtt sér
    undanþágur eins og hafa verið t.d. fyrir námsmannaíbúðir. Ég er kannski á
    svipuðum slóðum og hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson varðandi þetta. Ef
    hæstv. ráðherra gæti fjallað aðeins um þessa undanþágu og í hvaða tilvikum
    það hefur verið sem þetta hefur komið verr út fyrir þá sem eru á
    leigumarkaði hjá óhagnaðardrifnum félögum og kannski sérstaklega hjá
    námsmönnum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>