<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T15:41:14" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:43:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:41:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Aðeins nánar
    á þessum nótum þá hefur maður auðvitað skilning á því og ég tel æskilegt
    að sett sé ákveðin leigubremsa og að horft sé til þess að gera frekar
    langtímaleigusamninga á almennum markaði en svona út frá eðli kannski
    sérstaklega leigusamninga hjá námsmönnum, sem eru oft samningar til
    styttri tíma og tímabundnir samningar. Ef maður horfir til annarra
    Norðurlanda og annarra Evrópulanda þá hefur að mínu mati tekist best til
    við að vernda þennan hóp, þ.e. námsmenn, ef það eru samt sem áður gerðar
    ákveðnar undanþágur í lögum til að tryggja að þeirra sérstöðu sé haldið á
    lofti og lögin þjóni þessum hópi vel.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En sem seinna andsvar: Telur hæstv. ráðherra samt sem áður
    æskilegt að hafa, þar sem það á við, ákveðnar undanþágur í lögum varðandi
    námsmannaíbúðir? Það er auðvitað skýr vilji löggjafans að það sé gert til
    að þjóna hagsmunum þessara leigjenda sérstaklega, sem eru þá námsmenn sem
    eru eðli málsins samkvæmt fyrst og fremst til styttri tíma á þessum
    tiltekna leigumarkaði. Ég má til með að nefna að þetta tengist öðru máli
    sem eru stofnframlög og vil koma því að líka að því ber að fagna að það
    hefur náðst árangur í því t.d. að vinna niður biðlista Félagsstofnunar
    stúdenta, svo dæmi séu nefnd, eftir námsmannaíbúðum. Þar skiptir auðvitað
    miklu máli líka vilji sveitarfélaga til að byggja upp óhagnaðardrifið
    húsnæði. Ég veit að ég og hæstv. ráðherra erum sama sinnis í þessu efni og
    ég vildi bara koma þessu að, en aðallega varðandi undanþágur
    námsmanna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>