<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-10-05T15:43:24" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 15:44:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T15:43:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari
    spurninguna. Mín skoðun er alveg skýr, að þegar kemur að rétti leigjenda
    sé ekki eðlilegt að veita sérstakar undanþágur sem skerða þann rétt. Það
    er mín staðfasta skoðun. Hins vegar treysti ég hv. velferðarnefnd til að
    fara vel yfir frumvarpið og vinna það í velferðarnefnd og ef hún sér
    annmarka eða möguleg tækifæri til að gera enn betur þá styð ég og treysti
    hv. velferðarnefnd í þeirri vinnu. Þau sem hafa fylgst með fréttum
    undanfarið vita t.d. stöðuna á Spáni þar sem verið er að boða til
    þingkosninga einmitt út af því að ekki hefur tekist að ná sátt um aðgerðir
    á leigumarkaði. Þetta frumvarp er viðbragð við mjög alvarlegri stöðu sem
    er komin upp á íslenskum húsnæðismarkaði og við höfum farið í fjölmargar
    breytingar, bæði á stofnframlagakerfinu og hlutdeildarlánum, jákvæðar
    breytingar sem hafa sannarlega skilað árangri og við erum hvergi nærri
    hætt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>