<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T13:31:14" skst="GIK" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 13:33:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T13:31:14">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="69">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þegar fólk er á versta stað í lífi sínu vegna
    veikinda eða ef það t.d. missir maka þarf að sýna fólki samúð, tillitssemi
    og virðingu. Ég er að tala um eldra fólk sem er jafnvel með fjölfötlun og
    þroskahömlun. Því miður hefur eldra fólk haft samband við mig sem er í
    þeirri aðstöðu að hafa misst maka og er að fá rukkun frá Tryggingastofnun
    ríkisins og jafnvel Skattinum; kaldranaleg bréf inn um lúguna og
    viðkomandi er bent á að hann geti farið inn á island.is og leitað sér
    upplýsinga. Við erum líka að tala um fólk sem er jafnvel lögblint, með
    fjölfötlun, jafnvel lyfjað og með elliglöp, og við verðum að sýna þessu
    fólki tillitssemi og sjá til þess að það sé komið fram við það þannig að
    það viti hvert það getur leitað. Það á ekki að vera mjög flókið fyrir
    Tryggingastofnun ríkisins að hafa mann sem sendir bara vinalegt bréf á
    viðkomandi og bendir honum á að hann geti fengið tíma hjá viðkomandi og
    honum verði stýrt og leiðbeint um hvernig hann eigi að ganga frá sínum
    hlutum. Það er ekki eðlilegt að fólk þurfi að leita úti í bæ og viti
    ekkert hvað það á að gera vegna þess að það er kannski einstætt. Makinn er
    farinn og sá sem fær kröfuna hefur ekki séð um fjármálin og hann hefur
    ekki hugmynd um hvað hann á að gera og veit ekkert hvert hann á að leita.
    Tryggingastofnun getur fundið viðkomandi einstakling og sent honum bréf.
    En ég spyr mig: Er það gervigreindin sem sendir bréfin? Þessi bréf eru
    steindauð, þau eru bara innheimta. Sendum bréf sem fólkið skilur og gefum
    því tíma. Segjum við það: Þú kemur hingað til Tryggingastofnunar og hittir
    fulltrúa og við förum í gegnum málið og sýnum þér hvað er hægt að gera.
    Gleymum ekki að ef það eru sérstakar aðstæður til staðar er hægt að fella
    niður viðkomandi kröfu. Þetta er mjög einfalt og ég held að þetta sé
    einmitt það sem við þurfum að gera og kostar ekki neitt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>