<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T13:33:30" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 13:35:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T13:33:30">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="69">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Stjórnarskrá Íslands kveður á um að öllum sé frjálst
    að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með
    lögum enda krefjist almannahagsmunir þess. Í fyrra var stofnstærð makríls
    endurmetin aftur í tímann, þ.e. stærð stofnsins frá árinu 2010 og til
    ársins 2020. Samkvæmt því endurmati sögðu sérfræðingar
    Hafrannsóknastofnunar að stofninn hafi verið ríflega 400%, fjórfalt
    stærri, en áður var áætlað á umræddu árabili. Í framhaldi af þessum
    tíðindum benti ég á að þar sem stofninn hefði í raun verið mun stærri en
    áður var áætlað hefði aldrei verið um neina ofveiði að ræða eins og haldið
    hafði verið fram af Hafró, miklu frekar augljósa vanveiði. Það var
    vanveiði á þessu tímabili. Í október í fyrra vildi Hafró grípa í
    neyðarhemil á grundvelli þess að Alþjóðahafrannsóknaráðið gaf út svarta
    spá fyrir makrílinn. Reiknilíkanið sýndi nefnilega að hrygningarstofninn
    væri kominn undir varúðarmörk. En hvað gerist nú í haust? Það er nýr tónn.
    Það er 102% aukning á veiðum. Í norskum sjávarútvegi fer fram mikil umræða
    um þessa ónákvæmu jójó-ráðgjöf. Ef farið er með hlutlægum hætti yfir
    söguna og þessa gríðarlegu óvissu í ráðgjöf gefur augaleið að það voru
    engir almannahagsmunir að leiðarljósi þegar makríllinn var kvótasettur.
    Það var eitthvað annað. Enn ríkir gríðarlega mikil óvissa. Í fyrra átti að
    grípa í neyðarhemil en núna er 100% aukning. Það er því rétt að bregðast
    við og skoða hvort það hafi verið rétt að kvótasetja og hvort við eigum
    ekki að snúa við blaðinu, auka frelsið og fyrir þá sem vilja fara varlega
    og koma í veg fyrir offjárfestingu má þess vegna hafa makrílveiðar
    frjálsar <ns:bjalla/> fyrir báta undir 100 tonnum. Setjum stjórnarskrána
    og atvinnufrelsi í forgang hér á hinu háa Alþingi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>