<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T13:35:58" skst="SHP" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 13:38:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T13:35:58">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="69">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Á Heiðarfjalli á Langanesi blasir við eitt
    alvarlegasta elsta mengunarmál Íslandssögunnar. Bandaríski herinn rak þar
    ratsjár- og fjarskiptastöð fram til ársins 1970. Nú eru liðin meira en 50
    ár frá því að starfseminni lauk. Samt hefur svæðið ekki verið hreinsað.
    Við vitum að stórhættuleg efni liggja í jarðveginum. Þar hafa fundist
    PCB-efni, blý, asbest og olíuefni langt yfir viðmiðunarmörkum. Vitað er að
    mengunin er ekki bara bundin við gamla stöðvarsvæðið heldur berst hún með
    grunn- og yfirborðsvatni til suðurs. Mengunin skapar þannig hættu fyrir
    fólk og dýr. Rannsóknir hafa verið gerðar, skýrslur skrifaðar og
    viðvörunarskilti reist en hin mengandi efni eru enn á sínum stað rúmri
    hálfri öld eftir að herinn fór af svæðinu. Þetta mál þarf ekki lengur
    pólitíska umræðu. Það er brýn þörf á aðgerðum. Það hefur ekkert upp á sig
    að benda á tiltekna ríkisstjórn, ráðherra eða stjórnmálaflokk sem hefðu
    átt að leysa málið. Ábyrgðin hefur verið á höndum ríkisstjórna og
    ráðuneyta og farið þar á milli í áratugi. Nú ættum við hins vegar öll að
    geta staðið saman um að ganga í verkið þvert á flokka og pólitíska stefnu.
    </ns:mgr>

    <ns:mgr>Það eru aðeins tveir ábyrgir kostir í stöðunni; annaðhvort verði
    svæðið hreinsað með skipulögðum og öruggum hætti eða því lokað þannig að
    fólk og skepnur komist ekki inn á hættusvæðið þar til hreinsun hefur farið
    fram. Viðvörunarskilti fjarlægja ekki PCB, blý eða asbest. Þau stöðva ekki
    mengun sem berst með vatni og vernda hvorki fólk, búfé né náttúru með
    fullnægjandi hætti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég legg til að við tökum höndum saman um
    tímasetta og fjármagnaða áætlun til að hreinsa Heiðarfjall. Þar til
    hreinsunarstarf og á meðan á því stendur verði mengaða svæði lokar með
    tryggum hætti. Það er óþarfi að deila um hver ber mesta ábyrgð á því að
    ekki hefur verið gripið til aðgerða. Þingmenn bera aftur á móti allir
    sameiginlega ábyrgð á stöðunni eins og hún er núna. Bindum enda á rúmlega
    hálfrar aldar aðgerðaleysi. Göngum í verkið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>