<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T13:40:26" skst="EBB" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 13:42:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T13:40:26">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="69">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þessi vika sem nú er gengin í garð er af
    Kvenfélagasambandi Íslands tileinkuð einmanaleika, tilfinningu sem getur
    verið ósýnileg en hefur djúp áhrif á líf fólks. Við hugsum oft um einmana
    manneskju sem einhvern sem býr einn, situr alltaf einn í matsalnum eða á
    fáa að en rannsóknir sýna að málið er ekki svo einfalt. Fólk getur verið
    einmana í fjölmenni. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin áætlar að einn af
    hverjum sex í heiminum upplifi að vera einmana. Það hlutfall er eins og
    hér væri um að ræða tíu þingmenn. Það sem vekur þó sérstaka athygli í þeim
    rannsóknum sem kynntar hafa verið er að einmanaleikinn er algengastur
    meðal ungmenna. Um einn af hverjum fimm ungum einstaklingum upplifir
    einmanaleika. Einmanaleiki er líka meðal eldra fólks.
    Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur líka bent á að um 12% eldra fólks
    upplifi einmanaleika.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er staðreynd að félagsleg einangrun og
    einmanaleiki getur haft áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu fólks. En
    við verðum að muna eitt mikilvægt atriði þegar rætt er um einmanaleika: að
    vera einn er ekki það sama og að vera einmana. Maður getur notið þess að
    vera einn, lesið bók, farið í göngutúr eða einfaldlega notið þess að eiga
    félagsskap með sjálfum sér. Einmanaleiki snýst nefnilega um skort á
    tengingu við aðra, tengingu sem við öll þurfum á að halda.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Í þessari viku skulum við ekki aðeins tala um
    einmanaleika heldur um tengsl. Hringjum í þann sem við höfum ekki heyrt í
    lengi, höfum samband við einhverja sem eru einir, spyrjum ungan
    einstakling hvernig honum líði. Gefum okkur tíma fyrir afa og ömmu,
    nágrannann eða vinina. Stundum getur nefnilega stutt samtal skipt sköpum
    og stundum er það mikilvægasta einfaldlega að vera til staðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>