<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T13:42:34" skst="KGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 13:44:58 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T13:42:34">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="69">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Um þessar mundir liggja drög að frumvarpi um náttúru-
    og innviðagjald í samráðsgátt stjórnvalda. Þar ráðgera stjórnvöld að rukka
    tiltekna erlenda ferðamenn yfir 18 ára aldri um 4.500 kr. yfir
    háannatímann en minna á öðrum tímum. Með sérstöku eftirliti á viðkomandi
    ferðamannastöðum verður gengið úr skugga um að viðkomandi hafi greitt
    þennan nýja skatt. Umræða um gjaldtöku af erlendum ferðamönnum hefur lengi
    verið uppi og ýmsar hugmyndir verið viðraðar í gegnum árin en hér er þó
    ekki um neitt almennt gjald að ræða, frú forseti. Það sem mesta athygli
    vekur er að gjald er einungis lagt á einn landshluta, Suðurland, og ekki
    bara á einn landshluta, frú forseti, heldur eina sýslu, Árnessýslu, og
    ekki bara á eina sýslu, frú forseti, heldur ferðamannastað sem staðsettur
    er í einu sveitarfélagi, Bláskógabyggð. Eitt sveitarfélag, frú forseti,
    eitt sveitarfélag. Þannig verða erlendir ferðamenn rukkaðir um þetta
    innviðagjald ef þeir hyggjast heimsækja Gullfoss, Geysi og Þingvelli,
    okkar helstu náttúruperlur. Óhætt er að segja að þessi áform um nýja
    skattlagningu hafi vakið mikil og hörð viðbrögð. Ferðaþjónusta á svæðinu á
    sér langa sögu og allir innviðir hafa verið byggðir upp á löngum tíma og
    strax verður vart við að dregið hefur úr fjárfestingaráformum á þessu
    svæði. Undirtónninn með þessum frumvarpsdrögum er að þannig sé unnt að
    dreifa ferðamönnum betur um landið og það skal gert með því að skerða
    samkeppnishæfni þessa tiltekna svæðis þar sem finna má mestu náttúruperlur
    landsins, Gullfoss og Geysi, og þjóðargersemina Þingvelli með sína mögnuðu
    sögu, náttúru, jarðfræði og stofnstað elsta þjóðþings í heimi. Vitaskuld
    munu ferðaþjónustuaðilar hugsa sig tvisvar um þegar velja á áfangastaði og
    hættan er sú að farnar verði aðrar leiðir og fundnir aðrir staðir.
    <ns:bjalla/> Nei, frú forseti. Nú er kominn tími til að stöðva þetta
    skattabrjálæði ríkisstjórnarinnar sem í þessu tilfelli mun einungis koma
    hart niður á ferðamannastöðum á Suðurlandi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>