<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T13:49:49" skst="RagnhJ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 13:52:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T13:49:49">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="69">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin fagnar því að samkvæmt
    fjárlagafrumvarpi næsta árs verði hallarekstri ríkissjóðs snúið í afgang.
    Að fagna því núna er svolítið eins og að fagna því að hafa náð tindi
    Everest á meðan maður stendur enn í grunnbúðunum. Í fjárlögum ársins 2026
    var gert ráð fyrir 28 milljarða kr. halla. Núverandi horfur gera hins
    vegar ráð fyrir 67,5 milljarða halla. Þar munar nærri 40 milljörðum. Til
    samanburðar er gert ráð fyrir tæplega 5 milljarða afgangi á næsta ári. Það
    skiptir þó máli hvernig við ætlum að komast þangað. Aðhald á
    útgjaldahliðinni þarf að vera meginverkefnið. Auknar álögur eru ekki
    sjálfbær leið til að mæta vaxandi útgjöldum ríkisins. Skattar hafa áhrif á
    hvata fólks og fyrirtækja til fjárfestinga og verðmætasköpunar. Við þurfum
    framleiðnivöxt til að halda uppi hagvexti, styrkja skattstofna og tryggja
    sjálfbær ríkisfjármál til lengri tíma. Ríkisfjármálin skipta líka máli í
    baráttunni við verðbólguna. Hún mælist nú 5,9% og hefur farið fram úr
    verðlagsforsendum kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Á fimmtudag
    rennur út frestur til að ákveða hvort kjarasamningarnir haldi og útlitið
    er ekki gott. Seðlabankinn hefur haldið vöxtum háum til að ná verðbólgunni
    niður, sveitarfélögin hafa lýst sig reiðubúin til að halda hækkunum
    almennra gjaldskráa innan 2,5% og kallað eftir sambærilegu aðhaldi
    ríkisins. Ríkisstjórnin hefur nú boðað að takmarka hækkanir almennra
    krónutölugjalda og gjaldskráa ríkisstofnana við 2,5% haldi
    kjarasamningarnir. Aðrar skatta- og gjaldahækkanir eru þó enn
    fyrirhugaðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Peningastefnan, fjármál hins opinbera og
    vinnumarkaðurinn þurfa að vinna saman ef ná á verðbólgunni niður. Þar
    þurfa ríkisfjármálin að leggja sitt af mörkum með trúverðugu aðhaldi á
    útgjaldahliðinni. Stefnum ótrauð á tindinn en bíðum með að fagna þar til
    toppnum er náð.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>