<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T13:52:12" skst="HGÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 13:54:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T13:52:12">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="69">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. 11. október verða liðin 40 ár frá hinum
    sögulega fundi í Höfða milli þeirra Mikhails Gorbachevs og Ronalds
    Reagans. Á fundinum skapaðist traust milli leiðtoganna sem leiddi í
    framhaldinu til þess að heimurinn varð mun friðvænlegri en áður og Ísland
    hafði mikinn sóma að fundinum. Á þessum tíma nutu Íslendingar mikils
    trausts á alþjóðavettvangi og áttu í vinsamlegum samskiptum við þjóðir
    bæði austan tjalds og vestan. Ólíklegt er að Ísland hefði verið valið sem
    fundarstaður ef svo hefði ekki verið. Óréttlæti heimsins var þó engu minna
    þá en nú. Því hefði mátt segja við Gorbachev: Sovétríkin hafa haldið
    Austur-Evrópu í heljargreipum í áratugi og við fordæmum þig fyrir alla þá
    pólitísku fanga sem land þitt hefur í haldi. Og gagnrýna hefði mátt Reagan
    fyrir ýmislegt líka. Ekkert af þessu gerðum við hins vegar. Við höfðum um
    áratugi átt mikil viðskipti við báðar þessar þjóðir og sýndum leiðtogum
    þeirra staka virðingu án þess að í því fælist stuðningur við hvað eina sem
    ríki þeirra höfðu tekið sér fyrir hendur. Við rákum stillilega
    utanríkisstefnu þar sem greint var á milli stjórnmála og
    verslunarviðskipta og lögðum áherslu á að gæta fyrst og fremst hagsmuna
    íslensku þjóðarinnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En hvernig er utanríkisstefna Íslands nú? Hún virðist vera þannig
    að ef komið er auga á eitthvert óréttlæti í heiminum er farið af stað og
    gripið til hörðustu aðgerða sem völ er á, jafnvel umfram aðrar vestrænar
    þjóðir. Við höfum hætt öllum viðskiptum við Rússa sem hefur kostað okkur
    milljarða meðan aðrar þjóðir Evrópu hafa haldið áfram margvíslegum
    viðskiptum við þá. Skaginn fór á hausinn á Akranesi sem átti afgerandi
    þátt í því að þáverandi utanríkisráðherra varð að finna sér nýtt kjördæmi
    og núverandi utanríkisráðherra ákvað að slátra milljarðafyrirtækinu
    Vélfagi vegna lítt sannaðra tengsla við Rússland. Við lögðum niður
    sendiráð okkar í Moskvu og vorum við eina þjóðin sem það gerði og segir
    það sína sögu. Ekki bætir um sú eftiráskýring að það hafi ekki síst verið
    gert vegna kjötbita sem fundist hafi í kæliskáp grænmetisætu starfandi í
    sendiráðinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Utanríkisstefna Íslands tekur nú iðulega sáralítið mið af
    hagsmunum þjóðarinnar og þetta þarf að breytast. Það er kominn tími til að
    gæta á ný íslenskra hagsmuna fyrst og síðast. Ég lýsi yfir þeirri von
    minni að svo megi verða hið allra fyrsta og að Íslandi verði ekki flækt í
    mál sem það getur ekki haft raunhæf áhrif á til gagns. — Þökk fyrir,
    virðulegi forseti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>