<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T13:54:54" skst="VPF" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 13:57:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T13:54:54">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="69">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er auðvelt að segjast standa með
    barnafjölskyldum og ungu fólki. Prófið er hvort við treystum foreldrum
    fyrir eigin ákvörðunum og eigin sjálfsaflafé. Nú var stór hópur ungs fólks
    sem lagði traust sitt á þessa ríkisstjórn í upphafi kjörtímabils og hefur
    þegar fengið á sig fjöldann allan af skattahækkunum. Komið hefur verið á
    kílómetragjaldi, ný húsaleigulög munu hækka leigu, tekjuskattur hækkaður
    með brotthvarfi framlegðarauka og nú síðast hækkun bankaskatts sem endar
    einungis á almenningi, að ég tali nú ekki um óbein útgjöld í formi
    skattahækkana, vaxtahækkana, verðbólgu og aukins atvinnuleysis sem bitnar
    mest á ungu fólki. Það verður að gera fólki auðveldara fyrir í upphafi
    þegar fólk er að koma undir sig fótunum. Karítas Ólafsdóttir lýsti á
    <ns:skáletrað>Vísi</ns:skáletrað> í síðustu viku hvernig hún dreifði
    fæðingarorlofi til að vera lengur með barni sínu. Nú á hún von á öðru
    barni og segir að greiðslurnar verði aðeins 280.000 kr. á mánuði fyrir
    skatt. Dreifing fyrra orlofs lækkar viðmið þess næsta og þessu verður að
    breyta. Fyrra fæðingarorlof á ekki að rýra tekjuviðmið þess næsta. Stutt
    rof á milli starfa á ekki að fella niður allan tekjutengdan rétt og fyrr í
    sumar sáum við fréttir af því að foreldrar tapi réttindum til
    fæðingarorlofs vegna þess að barnið fæðist fyrir tímann. Við verðum að
    gera ungu fólki auðveldara fyrir og leyfa því að stýra sér sjálft. Því er
    ég með nokkrar hugmyndir til að auka frelsi barnafjölskyldna. Ég vil 12
    mánaða fæðingarorlof sem foreldrar skipta sjálfir, foreldri sem annast
    barnið eitt fær allan réttinn. Ég vil líka að foreldrið sem vinnur á meðan
    makinn er í orlofi sé undanskilið tekjuskatti, skattalækkun sem fer beint
    til barnafjölskyldna. Við þurfum að auðvelda fólki að kaupa húsnæði með
    því að leggja af stimpilgjöld og leggja af fjármagnstekjuskatt til að
    auðvelda fólki að safna fyrir íbúð svo að sparnaður í banka sé ekki
    skattlagður.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Kæra ríkisstjórn. Í dag er of erfitt fyrir ungt fólk að koma undir
    sig fótunum í núverandi umhverfi og ég hvet ykkur til að taka þetta til
    skoðunar og hætta þessari forræðishyggju. — Takk.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="ÞSv">Forseti gerir sér grein fyrir því að
    ríkisstjórnin er mörgum kær en hún er ávallt nefnd
    háttvirt.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>