<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T13:57:28" skst="TÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 13:59:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T13:57:28">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="69">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hér í þessum sal vorum við að ræða leigubremsu í gær
    sem er ákveðið mál sem á eftir að fara betur yfir síðar. Leigubremsa er þó
    eitthvað sem við í Sjálfstæðisflokknum þurfum ekki að hafa áhyggjur af
    þessa dagana þar sem við búum leigulaust í höfðinu á hæstv. ríkisstjórn og
    þá sérstaklega Samfylkingarinnar, sem þessa dagana hamrar þannig
    lyklaborðið á óskráðum fjölmiðli sínum um allt sem Sjálfstæðisflokkurinn
    segir og gerir. Þetta eru verk fólks sem er algerlega ófært um að líta í
    eigin barm, fólk sem sagði eitt fyrir kosningar en gerir annað núna, allt
    þvert á það sem var lofað. Ég skil að þetta særi stoltið, ég átta mig
    fyllilega á því, en að taka það út á stjórnarandstöðunni með skítkasti og
    stundum hreinu bulli er lítilmannlegt. Örfá dæmi: Fyrir nokkrum mánuðum
    talaði hér einn hv. þm. Samfylkingarinnar um skattagrýlu, samdi mikið
    jólakvæði í þessu ræðupúlti sem átti að gera lítið úr varnaðarorðum
    Sjálfstæðisflokksins um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. En hver var svo
    staðreynd málsins? Gegndarlausar skattahækkanir á skattahækkanir ofan sem
    allir, sem höfðu sæmilega kunnáttu á reiknivél, bentu á að myndi hafa bein
    áhrif á efnahag landsins, efnahaginn sem þessi ríkisstjórn lofaði og var
    kosin til að laga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Formaður efnahags- og viðskiptanefndar var síðan í viðtali á
    dögunum þar sem hún sagði blákalt í beinni útsendingu að krónutöluhækkanir
    í nýju fjárlagafrumvarpi væru taktískt útspil hjá ríkisstjórninni, eins og
    hún væri Heimir Hallgrímsson á leiðinni á Evrópumeistaramótið. Hæstv.
    fjármálaráðherra var þó fljótur að bera þetta til baka. Sami hv. þingmaður
    Samfylkingarinnar var síðan í öðru viðtali á dögunum beðinn um nokkur dæmi
    um hvernig hæstv. ríkisstjórn væri að hjálpa atvinnulífinu í þessu landi.
    Hún taldi upp þrjú dæmi, það voru bankaskattur, veiðigjaldaskattur og
    baðlónaskattur. Það eru sem sagt skattar sem eru farnir að blása
    atvinnulífinu hér í landi byr undir báða vængi. Þetta heldur auðvitað engu
    vatni, það segir sig sjálft. Ef sitjandi ríkisstjórn ætlar að taka slíkar
    ákvarðanir, sem raun ber vitni síðustu tvö ár, sem hafa bein áhrif á
    vexti, verðbólgu og atvinnuleysi, þarf fólk að standa með orðum sínum og
    gjörðum. Núverandi ríkisstjórn tók ákvörðun um að hækka álögur á fólkið í
    landinu. Núverandi ríkisstjórn tók ákvörðun um að hækka álögur á
    fyrirtækin í landinu <ns:bjalla/> þvert á varnaðarorð stjórnarandstöðunnar
    og margra sérfræðinga. Margt stórt gerir eitt risastórt og nú horfum við
    fram á ögurstund í kjaramálum landsins. Ef hæstv. ríkisstjórn <ns:bjalla/>
    ræður ekki við verkefnið þá á hún bara að segja til því að það er hægt að
    laga það vandamál. Það væri a.m.k. ágætisbyrjun <ns:bjalla/> að líta inn á
    við.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>