<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T14:00:05" skst="ÁBH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:02:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:00:05">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="69">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ítrekað heyrum við sögur af foreldrum sem eru
    að reyna að fá aðstoð fyrir börnin sín í kerfinu svokallaða en lenda í
    langri bið eða einhvers konar úrræðaleysi. Ég þori að fullyrða að
    þingheimur og samfélagið allt sé sammála um að þegar börn þurfa á þjónustu
    að halda þá viljum við að hún sé til staðar, að biðin sé stutt og að hún
    virki vel. Fyrir fimm árum voru innleidd lög sem í daglegu tali ganga
    undir heitinu farsældarlögin. Markmið þeirra var að tryggja að börn og
    foreldrar hefðu aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana, að þeim
    væri tryggður réttur á aðstoð á réttum tíma og frá réttum aðilum.
    Markmiðið var sannarlega gott en í byrjun sumars skilaði Ríkisendurskoðun
    stjórnsýsluúttekt um innleiðingu og framkvæmd laganna sem innihélt
    ábendingar sem við þurfum að taka alvarlega. Skýrslan dregur m.a. fram að
    undirbúningur laganna hafi verið ófullnægjandi og að ávinningsmatið hafi
    vakið óraunhæfar væntingar; að það hefði átt að byrja á að kortleggja
    stöðu barna, hvaða þjónusta væri til staðar, hvaða úrræði vantaði og síðan
    ákveða forgangsröðun. Það er nefnilega þannig að það er ekki hægt að
    samþætta þjónustu sem er ekki til staðar eða þjónustu sem þarf að bíða
    eftir mánuðum saman eða jafnvel árum saman.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á eftir að fjalla ítarlega um
    skýrsluna en, virðulegur forseti, mér þykir þessi kortlagning sem
    ríkisendurskoðandi kallar eftir ekki þola neina bið. Ég hef þess vegna
    lagt fram beiðni um skýrslu til forsætisráðherra um kortlagningu á
    velferðarumhverfi barna og fjölskyldna þeirra. Skýrslubeiðnin er mjög
    ítarleg og tekur til þjónustu og úrræða á sviði félagsmála,
    heilbrigðismála og barnaverndarmála. Hún á m.a. að greina hvaða þjónusta
    er til staðar, hver ber ábyrgð á henni, hvernig aðgengi að þjónustu er
    fyrir ólíka hópa á ólíkum svæðum, hvar götin liggja í kerfinu og síðast en
    ekki síst hvort árangursmæling sé að eiga sér stað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hvet þingmenn til að kynna sér efnið og veita skýrslubeiðninni
    brautargengi þegar hún kemur til atkvæðagreiðslu, vonandi á næstu
    dögum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>