<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T14:02:23" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:04:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:02:23">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="69">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Fjölskyldur og fyrirtæki þurfa
    fyrirsjáanleika. Heimilin þurfa að geta skipulagt bílakaup, félagsstarf
    barna og sumarleyfi, svo eitthvað sé nefnt. Fyrirtækin þurfa stöðugar
    forsendur fyrir ráðningu á starfsfólki og fjárfestingum í nýrri tækni.
    Breytingar og óljós gjaldtökuáform gera hvort tveggja erfitt. Ábyrgur
    rekstur ríkisins er grundvallaratriði. Við styðjum markmið um jafnvægi í
    ríkisfjármálum en ekki sama hvað það kostar. Þegar ríkið hækkar gjöld og
    skatta án samræmingar vinnur það gegn fyrirsjáanleika. Slík ringulreið
    leggur auknar byrðar á heimili og verðhækkandi áhrif hennar eru hluti
    verðbólguvandans. Þess vegna þurfum við að breyta umræðunni um álögur á
    heimilin, horfa á samtölu gjaldahækkana, frystingu bóta og
    skerðingarmarka, möguleg áhrif bankaskatts á lánskjör og verðhækkanir á
    verðtryggðar skuldir, svo dæmi sé tekið. Við í Framsókn höfum metið áhrif
    af fyrirhuguðum breytingum fjárlagafrumvarpsins á ólík heimili. Í dæmunum
    okkar getur viðbótarkostnaður hlaupið á hundruðum þúsunda króna á ári
    eftir forsendum. Þar eru bæði bein útgjöld og áætluð áhrif
    húsnæðislána.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Heimilissáttin er svar Framsóknar til að auka
    gegnsæi. Reiknivélin sem við birtum í þessari viku færir umræðuna úr
    milljörðum ríkissjóðs yfir í áhrifin á fjárhag fjölskyldna og
    einstaklinga. Við viljum meira gagnsæi, það eykur traust. Við verðum að
    meta samanlögð áhrif hækkana áður en ákvarðanir eru teknar. Liður í þessu
    er samræming á gjaldtöku ríkis og sveitarfélaga til þess að stuðla að
    lægri verðbólgu, vernd heimila sem hafa minnst svigrúm og tryggja
    fyrirtækjum meiri fyrirsjáanleika.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>