<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T14:04:57" skst="SER" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:07:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:04:57">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="69">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að tala um ofbeldi, þann mikla
    vágest sem er að hreiðra um sig í samfélagi okkar, ekki síst af hálfu
    karla, ungra karla, miðaldra karla og jafnvel enn eldri karla. Á fyrri
    helmingi þessa árs, frá janúar til júní, voru tilkynnt 346 kynferðisbrot.
    Það eru nálega að jafnaði tvö á dag, tvö kynferðisbrot á dag allan fyrri
    helming þessa árs. Hér þurfum við að standa í lappirnar og aðhafast til að
    þetta ofbeldi fái ekki breiðst um allt land og verði viðvarandi því að
    e.t.v. er það svo að ofbeldi á Íslandi er orðið léttvægt fundið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nýjasta dellan, mig langar að orða hana svo, er að teipa ungmenni
    á fótum og höndum og fyrir munn og skilja það eftir fyrir utan heimili
    sitt svo það engist í sálarangist sem mun fylgja því ævina á enda, rétt
    eins og kynferðisbrotin 346 sem ég nefndi áðan, vegna þess að ofbeldi er á
    allan máta ógeðslegt og mun fylgja fólki sem verður fyrir því alla ævina á
    enda, konum, börnum og eftir atvikum körlum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við verðum að aðhafast eitthvað hvað varðar löggæslu, e.t.v.
    löggjöf og ég tala nú ekki um hjá heimilum og skólum. Við þá sem stunda
    ofbeldið vil ég segja eitt: Þið meiðið en ofbeldið mun líka fylgja ykkur
    alla ævina á enda. <ns:frammíkall>Heyr, heyr.</ns:frammíkall></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>