<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-06T14:07:37" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:25:49 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:07:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um
    breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið sem varðar innleiðingu
    svonefndrar bókunar 35 við EES-samninginn. Þetta er mál sem hljómar eins
    og pínulítið ópersónuleg lögfræði, en um hvað snýst málið? Þetta snýst í
    grunninn um fólk, hvort réttindi sem Alþingi hefur þegar samþykkt að fólk
    eigi að njóta séu raunveruleg réttindi þegar á reynir eða bara orð á
    blaði. Þá kemur að okkur stjórnmálafólkinu í þessum sal: Viljum við að
    fólk njóti þeirra réttinda? Við höfum þegar dæmi sem við þekkjum um
    íslenska konu, móður og lækni sem naut ekki þeirra réttinda í
    fæðingarorlofi sem henni bar og þurfti að leita til dómstóla. Það er
    kaldhæðnislegt að þegar henni voru loksins dæmdar skaðabætur var barnið
    sem fæðingarorlofið snerist um komið á grunnskólaaldur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er mál að linni. Það er kominn tími til þess að við afgreiðum
    þetta. Niðurstaðan í þessu máli var alveg skýr og þess vegna segi ég: Nú
    eru aðstæður, nú er vilji, myndi ég halda líka, m.a. eftir allt sem var
    sagt í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, til þess að bera ábyrgð, sýna
    ábyrgð og klára þetta mál af því að þetta snýst á endanum um réttindi
    fólks.</ns:mgr>

    <ns:mgr>EES-samningurinn er einn mikilvægasti alþjóðasamningur sem við
    Íslendingar höfum gert. Það hefur verið margsagt í þessum sal en líka
    fyrir utan hann. Við þurfum að axla ábyrgð til þess að fylgja honum eftir.
    Hann hefur í meira en þrjá áratugi tryggt íslenskum einstaklingum og
    fyrirtækjum aðgang að sameiginlegum markaði Evrópu. Hann greiðir fyrir
    velmegun okkar Íslendinga, kemur íslenskri framleiðslu á markað, veitir
    fólkinu okkar tækifæri til menntunar og atvinnu, og tengir íslenskt hugvit
    og nýsköpun við fjármagn til frekari vaxtar. Samningurinn er meginstoð
    efnahagslegra tengsla Íslands við Evrópu. Á honum byggjast réttindi
    íslenskra borgara og fyrirtækja um allt Evrópska efnahagssvæðið. Við
    reiðum okkur á hann í núverandi ölduróti á alþjóðavettvangi. Þennan
    samning getum við ekki og megum ekki vanrækja. Það er ekki náttúrulögmál
    að hann virki, heldur byggist hann á að samningsaðilar standi með honum af
    heiðarleika og af alúð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Hér er um að ræða endurflutt mál sem á ekki að
    koma fólki í þessum þingsal neitt á óvart og hefur fengið ítarlega og afar
    góða umfjöllun hér á Alþingi. Frumvarpið var síðast lagt fram á 157.
    löggjafarþingi og var í kjölfarið vísað til utanríkismálanefndar. Meiri
    hluti nefndarinnar lagði til að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt en málið
    náði ekki að ganga fram fyrir þinglok. Það er því nú lagt fram að nýju
    efnislega óbreytt en með uppfærðri greinargerð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Tildrög þessa máls ættu að vera þingheimi kunnug. Í bókun 35 við
    EES-samninginn er kveðið á um að samningsaðilarnir skuli mæla fyrir í
    lögum um forgang þeirra reglna sem þeir hafa samþykkt og innleitt í
    innlendan rétt gagnvart öðrum settum lögum. Alþingi innleiddi þessa
    skuldbindingu með lögskýringarreglu þegar lög um Evrópska efnahagssvæðið
    voru sett árið 1993. Núna liggur fyrir dómur Hæstaréttar frá því í febrúar
    2024 á þá leið að lögskýringarreglan hafi ekki forgangsáhrifin sem bókun
    35 kveður á um. Þar til úr þessu er bætt er fólk og fyrirtæki hlunnfarin
    um réttindi sín. Ríkisstjórn Íslands lítur svo á að það sé óviðunandi
    ástand. Við viljum standa við skuldbindingar okkar samkvæmt EES-samningnum
    og við viljum sýna ábyrgð. Ég mæli þess vegna fyrir lögfestingu
    afmarkaðrar og sértækrar forgangsreglu til að framfylgja bókun 35 í
    samræmi við íslenska stjórnskipan.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Með frumvarpinu er lagt til nýtt ákvæði við lög
    nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið. Eins og flestir ættu að þekkja
    felur ákvæðið í sér mjög afmarkaða og sértæka forgangsreglu. Breytingin
    gengur út á að lagaákvæði sem Alþingi setur — munið þið, sem Alþingi setur
    — til að tryggja að íslenskir einstaklingar og fyrirtæki njóti réttinda og
    uppfylli skyldur samkvæmt EES-samningnum, gangi framar öðrum
    ósamrýmanlegum lagaákvæðum sem Alþingi hefur sett. Þetta snýst alltaf um
    lög sem Alþingi hefur sett. Við erum að fara og skoða ræturnar. Til
    einföldunar má segja að þetta sé regla um túlkun og forgang milli tveggja
    lagaákvæða sem sett hafa verið af Alþingi Íslendinga. Forgangsregla þessi
    er fyrst og fremst regla um hvernig leysa skuli úr árekstri milli
    íslenskra réttarreglna þegar ekki verður úr honum leyst með öðrum
    hætti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er rétt að árétta að gildissvið ákvæðisins sem hér er lagt til
    er að ýmsu leyti takmarkað. Þannig tekur það einungis til tilvika þegar
    tvö íslensk ákvæði í almennum lögum, eða eftir atvikum
    stjórnvaldsfyrirmælum, eru ósamrýmanleg. Hér er ekki átt við óinnleiddar
    EES-reglur eða reglur sem ekki hafa verið teknar upp í EES-samninginn,
    bara alls ekki. Þá á ákvæðið einungis við um lagaákvæði eða
    stjórnvaldsfyrirmæli sem réttilega innleiða skuldbindingu samkvæmt
    EES-samningnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í frumvarpinu er farin sambærileg leið við innleiðingu bókunar 35
    og gert var í upphafi á hinum Norðurlöndunum, einkum Noregi, þar sem
    EES-samningurinn var lögfestur. Og varðandi fullveldisspurningar þá er
    engin ástæða til þess að gera minna úr getu okkar Íslendinga en Norðmanna
    til að standa vörð um okkar fullveldi á sama tíma og við stöndum við gerða
    samninga, svo því sé haldið til haga, hæstv. forseti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fjöldi einstaklinga sem þekkja til stjórnskipunar hefur komið fram
    og stutt nauðsyn þess að koma á þeirri réttarbót sem felst í frumvarpinu.
    Þá liggur fyrir álitsgerð Þorgeirs Örlygssonar, fyrrverandi forseta
    Hæstaréttar og fyrrum dómara við EFTA-dómstólinn, um að frumvarpið, verði
    það að lögum, takmarki í engu svigrúm löggjafans til lagasetningar. Við
    erum því augljóslega innan marka stjórnarskrárinnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mikilvægasti punkturinn er þessi: Alþingi setur lögin og ræður
    hvaða lög gilda á hverjum tíma. Það er alveg skýrt. Ef það er vilji til að
    mæla fyrir um aðra niðurstöðu þá getur löggjafinn sjálfur gert það með
    skýrum hætti. Í íslenskum rétti hefur lengi verið viðurkennd sú
    lögskýringarregla að almennt skuli landslög skýrð til samræmis við
    þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands. Hér er því ekki verið að kollvarpa
    með neinum hætti lögskýringaraðferðum í íslenskum rétti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Fyrir um ári síðan þá stóð ég hér og mælti
    fyrir sama máli. Þar talaði ég um vatnaskil í málinu í tengslum við dóm
    Hæstaréttar frá 28. febrúar 2024, nr. 24/2023, í svokölluðu
    fæðingarorlofsmáli sem ég hef áður nefnt, málinu sem ég vísaði til hér í
    upphafi er varðaði rétt konunnar, Íslendingsins, unga kvenlæknisins, til
    greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Í málinu slær Hæstiréttur því föstu að
    bókun 35 sé ekki réttilega innleidd hér á landi eða, eins og segir í
    dómnum, með leyfi forseta: „Þannig hefur ekki verið lagt til grundvallar
    að það ákvæði“ – þ.e. skýringarregla 3. gr. laga nr. 2/1993 – „feli í sér
    almenna forgangsreglu í samræmi við bókun 35 við samninginn.“ Ég ítreka
    það sem segir í dómi Hæstaréttar: er ekki í samræmi við bókun 35 við
    samninginn. Niðurstaða dómsins leiddi til þess að unga konan, Anna Bryndís
    Einarsdóttir, varð af greiðslum. Hún varð af greiðslum í
    fæðingarorlofi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan hafa orðið frekari vatnaskil í málinu eins og fyrr segir,
    síðan ég talaði fyrir þessu frumvarpi á síðasta ári, þar sem Hæstiréttur
    hefur nú dæmt íslenska ríkið skaðabótaskylt gagnvart Önnu Bryndísi vegna
    þess tjóns sem hún varð fyrir og að mínu mati af því að Alþingi kláraði
    ekki sinn hluta, að uppfylla sínar skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum.
    Ábyrgð okkar hér í þessum þingsal er mikil í þessu sambandi. Það eru
    fleiri dæmi sem við vitum um. Barn hefur ekki notið réttar síns eftir slys
    vegna sælgætisúða, einhvers súrs sælgætisúða sem ku vera vinsæll en barnið
    hlaut tjón af, fór í mál við söluturninn en gat ekki farið í mál við
    framleiðandann af því við vorum ekki búin að innleiða bókun 35, sem hefði
    verið miklu eðlilegra, að fara á framleiðandann úti í heimi heldur en
    litla íslenska söluturninn. Af því að við hér vorum ekki búin að vinna
    okkar heimavinnu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í dóminum byggir Hæstiréttur á því að réttur Önnu Bryndísar til
    frjálsrar farar hafi verið skertur og að íslenska ríkið hafi ekki lagað
    löggjöf sína að þeim skuldbindingum sem leiddu af EES-samningnum. Þá hafi
    vanræksla ríkisins verið nægilega alvarleg til að stofna til
    skaðabótaábyrgðar. Þetta kemur allt saman fram í dómi Hæstaréttar Íslands,
    þetta er ekki eitthvað sem kemur að utan heldur er þetta Hæstiréttur
    Íslands sem er að leiðbeina okkur hér í þinginu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er mikilvæg niðurstaða. Það er óumdeilt að mínu mati að hér
    sé um tímamótadóm að ræða sem undirstrikar enn frekar mikilvægi þessa
    frumvarps. Anna Bryndís þurfti fyrst að reka mál fyrir dómstólum um
    sjálfan rétt sinn og síðan þurfti hún að fara í sérstakt skaðabótamál gegn
    íslenska ríkinu. Það getur ekki verið sú réttarvernd sem við hér á þingi
    viljum bjóða borgurum þessa lands. Markmiðið hlýtur að vera að réttindi
    sem leiða af EES-samningnum og hafa verið tekin upp í íslenskan rétt séu
    virk þegar á þau reynir en ekki að einstaklingar þurfi mörgum, mörgum árum
    síðar að leita bóta fyrir það að hafa ekki notið þeirra réttinda.
    Skaðabætur eftir á eru vissulega mikilvægt úrræði þegar ríkið hefur brotið
    gegn skyldum sínum en þær koma ekki í stað þess að einstaklingur njóti
    þeirra réttinda sem Alþingi Íslendinga hefur skuldbundið sig til að standa
    við.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Í kjölfar dóms Hæstaréttar hefur
    Eftirlitsstofnun EFTA nú ákveðið að höfða mál gegn Íslandi fyrir
    EFTA-dómstólnum vegna þess að stofnunin telur íslensk lög ekki tryggja með
    fullnægjandi hætti þann forgang réttilega innleiddra EES-reglna sem bókun
    35 gerir ráð fyrir. Afstaða stofnunarinnar er ekki ný af nálinni, en ESA
    tók málið fyrst upp árið 2012. Þá opnaði stofnunin samningsbrotamál undir
    lok árs 2017 og gaf út svokallað rökstutt álit 2020, þar sem afstaða ESA
    liggur fyrir. Stefna ESA gengur ekki út á að fá úr því skorið hvernig
    bókun 35 samrýmist íslenskri stjórnskipun. Hún gengur út á að fá dóm
    EFTA-dómstólsins, ekki dóm Hæstaréttar Íslands heldur EFTA-dómstólsins, um
    hvort Ísland hafi vanrækt þá grundvallarskuldbindingu EES-samningsins að
    tryggja forgang réttilega innleiddra EES-reglna. Dómaframkvæmd Hæstaréttar
    hefur þegar gert mjög skýrt að sú forgangsregla er ekki tryggð með
    núgildandi íslenskum lögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eigum við ekki bara, segi ég, virðulegi forseti, að gera þetta
    sjálf? Er það ekki kunnuglegt stef frá því fyrr á þessu ári, að við gerum
    þetta bara sjálf og tökum til hér heima hjá okkur?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er því ljóst að hér er ekki um venjulegt samningsbrotamál að
    ræða. Þetta er ekki ágreiningur um eina tilskipun, eina reglugerð eða einn
    tæknilegan annmarka á innleiðingu. Hér er tekist á um grundvallarskyldu
    íslenska ríkisins samkvæmt EES-samningnum sjálfum, skylduna til að tryggja
    að samningurinn sé raunverulega framkvæmdur hér á landi, að við framkvæmum
    hann af alúð, af ábyrgð og af heiðarleika og að við meinum það sem við
    segjum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrir mér er borðleggjandi að við Íslendingar klárum málið. Klárum
    það á eigin forsendum og fylgjum leiðsögn Hæstaréttar. Ég fæ ekki betur
    heyrt, eins og ég nefndi hér áðan, að málið muni jafnvel niður falla af
    hálfu eftirlitsstofnunarinnar eins og ég hef áður nefnt. Að minnsta kosti
    getum við alla vega staðið frammi fyrir EFTA-dómstólnum og sagt að við
    séum búin að laga þetta og að við stöndum við gerða samninga. Mér finnst
    meiri bragur á því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þeir sem halda því fram að EFTA-dómstóllinn muni skoða
    stjórnskipulegt tæki forgangsreglunnar eru á villigötum. Einungis
    Hæstiréttur Íslands er bær til að skera úr um það og skilaboð réttarins,
    Hæstaréttar Íslands, til okkar þingmanna hafa eindregið verið á þann veg
    að löggjafinn leysi sjálfur úr ástandi mála. Meiri bragur á því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti, EES-samningurinn er mikilvægasti
    viðskiptasamningur Íslands. Við höfum þvert á flokka undirstrikað það þó
    að einhverjir flokkar séu á undanhaldi frá þeirri fullyrðingu. Þetta er
    enn að mínu mati mikilvægasti viðskiptasamningur sem við Íslendingar höfum
    gert og byggist á því að einstaklingar og fyrirtæki geti treyst því að þau
    réttindi sem leiða af samningnum séu virk í raun, að réttindi sem leiða af
    samningnum séu virk í raun. Íslenskir borgarar og fyrirtæki eiga að geta
    treyst á þessi réttindi og notið þeirra hvort sem þau starfa, stunda nám
    eða reka starfsemi hér á landi eða annars staðar á Evrópska
    efnahagssvæðinu. Alveg eins og Íslendingur sem veikist á Spáni, stundar
    nám í Svíþjóð eða selur vöru til Þýskalands verður að geta treyst því að
    sömu leikreglur gildi innan EES. Kerfin eiga að þjóna fólkinu, ekki öfugt.
    Við eigum ekki að setja sand í þau tannhjól. Þetta er þjónusta við fólkið,
    ekki öfugt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Grundvallarforsenda þess að EES-samningurinn virki sem skyldi er
    að einstaklingar og fyrirtæki geti í reynd byggt á þeim réttindum fyrir
    íslenskum dómstólum sem Alþingi hefur þegar samþykkt að innleiða. Sé það
    ekki tryggt myndast bil milli þeirra réttinda sem Ísland hefur skuldbundið
    sig til að tryggja og þeirrar réttarverndar sem einstaklingar og fyrirtæki
    njóta í reynd. Málið snýst því bæði um réttaröryggi og að Ísland standi
    við þær skuldbindingar sem það hefur tekið á sig.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Málið hefur nú verið lengi til meðferðar. Réttarstaðan hefur
    skýrst verulega og við höfum raunverulegt dæmi um hvaða afleiðingar
    núverandi fyrirkomulag getur haft fyrir einstaklinga. Það er því í
    grunninn réttlætismál. Ég tel að það sé kominn tími til þess að við
    þingmenn hér á Alþingi Íslendinga horfumst í augu við það og við ljúkum
    meðferð þessa máls. Og það er alveg ljóst að valið er þingsins. Valið er
    þingsins. Við eigum að geta klárað það hér.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Með afstöðu til þessa frumvarps felst líka afstaða að mínu mati
    til EES-samstarfsins, bara alls EES-samstarfsins. Og að mínu mati, í
    þessum heimi sem við lifum í, mikilvægi þess að við viljum halda
    samstarfinu við Evrópusambandið óbreyttu á grunni EES-samningsins. Þá
    þurfum við að fylgja því eftir, að mínu mati, með þeirri reisn að geta
    gert þetta sjálf. Ég vil því skora á þingmenn að gera hreint fyrir sínum
    dyrum og gera almenningi ljóst hvort þau hyggist ganga hreint til verka og
    standa vörð, standa raunverulega vörð um okkar mikilvægasta
    viðskiptasamning eins og þau hafa ítrekað haldið fram eða taka einfaldlega
    afstöðu gegn honum. Enga hálfvelgju í þessu. Við þurfum að standa við
    okkar skuldbindingar og við eigum að gera þetta sjálf.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Alþingi gefst nú tækifæri til þess að sýna stuðning við
    EES-samninginn í verki. Ég hvet ykkur til þess að gera það og ég vona
    sannarlega að það verði góð samstaða um málið eftir þessa umræðu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég óska eftir því að málinu verði vísað til hv.
    utanríkismálanefndar og ég óska henni farsældar í starfi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>