<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T14:26:09" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:27:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:26:09">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna, hina
    endurteknu. Ég vil í fyrra andsvari mínu spyrja tveggja spurninga. Í
    fyrsta lagi: Lítur hæstv. ráðherra svo á að hægt sé að innleiða bókun 35
    með þeim hætti sem hún leggur hér til án þess að gera breytingar á
    stjórnarskrá Íslands? Í öðru lagi vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hver af
    þeim rökum sem sett voru fram í svörum utanríkisráðherra fyrrverandi árið
    2020, frá apríl 2020 til september 2020 — ég veit að hæstv. ráðherra
    þekkir þessi skrif vel — hvaða rök af þessum hafa úrelst síðan þau voru
    sett fram árið 2020?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>