<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-06T14:27:08" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:28:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:27:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Svarið við fyrri spurningunni er já. Það þarf
    ekki stjórnarskrárbreytingar í þessu. Ég held að það hafi komið skýrt
    fram, m.a. í áliti Þorgeirs Örlygssonar og fleiri sem hafa komið að þessu
    máli, þannig að það er alveg tvímælalaust þannig. Ég vil undirstrika það
    og m.a. benda á Noreg að þeir hafa innleitt bókunina með skýrum hætti og
    ekki misst neitt af sínu fullveldi. Ýmislegt hefur verið sagt í gegnum
    tíðina, hvort sem það var í apríl 2020. En það sem mér finnst skipta mestu
    máli varðandi seinni spurningu hv. þingmanns er að Hæstiréttur Íslands
    hefur kveðið upp sinn dóm með mjög skýrum hætti í máli Önnu Bryndísar, sem
    ég fór hér yfir, og síðan hefur íslenska ríkið orðið skaðabótaskylt. Mér
    finnst, og ég undirstrika það sem ég hef áður sagt, meiri bragur á því að
    við gerum þetta sjálf. Gerum þetta hérna í þinginu. Við erum búin að fara
    vel yfir þetta mál, gerum það aftur og klárum málið frá Alþingi
    Íslendinga.</ns:mgr>

    <ns:mgr/>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>