<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T14:28:27" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:29:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:28:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég verð að
    spyrja hæstv. ráðherra, sem er lögfræðimenntaður, hvort hæstv. ráðherra
    telji engan mun á svigrúmi norsku stjórnarskrárinnar og þeirrar íslensku
    hvað framsal varðar. Í öðru lagi langar mig að heyra afstöðu hæstv.
    ráðherra til þeirrar einföldu spurningar: Hví ekki að verjast fyrir
    EFTA-dómstólnum? Hæstv. ráðherra hefur nefnt hér ein tvö mál sem eru
    umdeilanlega til stuðnings þessari nálgun en það er fólk fyrir dómstólum
    dagana langa og ég man eftir orðum hæstv. ráðherra hér í þingsal þar sem
    hún vísaði til þess að menn yrðu að fá leyst úr ágreiningi og réttaróvissu
    sem myndi skapast vegna þessarar innleiðingar verði hún kláruð með þeim
    hætti sem ráðherra leggur til, fyrir dómi. En ég ítreka spurningarnar:
    Lítur ráðherra svo á að það sé ekki munur á svigrúmi norsku
    stjórnarskrárinnar og hinnar íslensku hvað framsal löggjafarvalds varðar?
    Hins vegar langar mig að heyra afstöðu ráðherra til spurningarinnar: Hvers
    vegna ekki að verjast fyrir EFTA-dómstólnum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>