<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-06T14:29:41" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:30:58 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:29:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þegar verið er að tala um Norðmenn þá er
    iðulega verið að segja, sérstaklega um bókunina hérna heima, að við munum
    missa einhvern hluta af fullveldinu. Við munum ekki gera það, ekki frekar
    en Norðmenn hafa misst nokkuð af sínu fullveldi. Þeir hafa ekki gert það
    og þótt þeir séu með aukið ákvæði í sinni stjórnarskrá þá sýnir það sig að
    þeir hafi ekki misst þetta fullveldi. Við eigum að geta gert þetta sjálf.
    Af hverju eigum við að vera að fara með þetta fyrir dómstóla, sem munu
    ekqki bara einblína á það sem Hæstiréttur Íslands á að hafa lögsögu um,
    hvort ákvæði fari gegn stjórnarskrá eða ekki? Við munum fara yfir það
    hvernig við erum að uppfylla EES-samninginn. Við eigum að gera þetta
    sjálf, mér finnst meiri manndómur í því að við getum gert þetta á okkar
    forsendum hér heima. Öðruvísi mér áður brá. Ég er bara að fara einhverjar
    sex eða átta vikur til baka. Eigum við ekki að gera þetta sjálf? Eigum við
    ekki að samþykkja íslensk lög? <ns:frammíkall skst="BergÓ">Við gerðum
    það.</ns:frammíkall> Eigum við ekki að gera það? Ég er að biðja um að við
    gerum það hér, af því að á endanum snýst þetta um íslensk lög, um
    grunninn, um íslensk lög. Hvaða íslensku lög sem við höfum samþykkt hér
    eiga að hafa forgang hverju sinni. Þetta snýst ekki um neitt annað.
    <ns:frammíkall>Heyr, heyr.</ns:frammíkall></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>