<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-06T14:33:36" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:35:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:33:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil mótmæla því harkalega að það hafi verið
    eitthvert viðbragðsleysi af hálfu íslenskra stjórnvalda eða norskra. Við
    fórum í mjög harkalega málafylgju og hagsmunabaráttu en á endanum verðum
    við að horfast í augu við það að við erum ekki í tollabandalaginu. Reyndar
    hefur norskt atvinnulíf síðan bent á að þau vilja, sérstaklega út af þessu
    máli, út af nákvæmlega þessu máli, fara í tollabandalagið, ekki endilega
    fara beint inn í Evrópusambandið en vilja kanna hvort Noregur geti fengið
    aðild að tollabandalaginu. Þetta eru m.a. viðbrögð norsks atvinnulífs svo
    við getum bent á það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við munum halda áfram að berjast fyrir því að samningurinn verði
    virkur. Ég vil sérstaklega draga fram að ég vona að hv. þingmaður sem var
    að spyrja hér áðan sýni það bæði hér í ræðu og síðan með atkvæðagreiðslu
    að hann ætli að standa vörð um EES-samninginn; að það sé ekki verið að
    hlaupa og reyna að benda á eitthvað annað til þess að komast hjá því að
    taka afstöðu í þessu máli. Mér þætti bara vænt um það ef þingmenn
    Sjálfstæðisflokksins færu nú að tala skýrt í þessu máli en, eins og ég
    segi, ekki vera með þessa hálfvelgju eða vita ekki í hvorn fótinn þeir
    eigi að stíga af því að Miðflokkurinn er á einhverri allt annarri leið. Ég
    hvet hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins til að hugsa ekki um sig sem
    einhvern síamstvíbura Miðflokksins. Hagsmunamálið er miklu stærra og meira
    en að það sé verið að leika sér að þessu. Þetta eru alþjóðaskuldbindingar
    okkar Íslendinga við mikilvægasta viðskiptasamning sem við Íslendingar
    höfum gert fram til þessa. Ég bara ætlast til þess að reyndir þingmenn og
    fyrrum ráðherrar standi vörð um þennan samning.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>