<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T14:35:49" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:37:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:35:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra þarf ekki að hafa áhyggjur af
    Sjálfstæðisflokknum þegar kemur að því að standa vörð um samninginn um
    Evrópska efnahagssvæðið. En ég vek athygli á því hvað hæstv. ráðherra
    sagði hér. Ef ég hafði áhyggjur áður en ég fór í þetta andsvar þá hef ég
    miklu meiri áhyggjur núna. Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið gengur
    út á fjórfrelsið. Það er grunnurinn að því. Það er það sem menn börðust
    fyrir. Ég og hæstv. ráðherra eigum það sameiginlegt að þegar við gengum í
    Evrópska efnahagssvæðið þá börðumst við fyrir því. Nú segir hæstv.
    ráðherra að við séum ekki í tollabandalagi og er að verja gjörðir
    Evrópusambandsins, þegar Evrópusambandið braut á okkur, samninginn um
    Evrópska efnahagssvæðið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. <ns:bjalla/> Ef Ísland gætir ekki hagsmuna
    Íslands þá gerir það enginn. Því miður <ns:bjalla/> var hæstv. ráðherra
    hér að staðfesta að hún er ekki að gæta hagsmuna okkar <ns:bjalla/> og er
    ekki að gæta hagsmuna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. <ns:bjalla/>
    Það er grafalvarlegt. </ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BHar"> Forseti biður hv. þingmenn um að virða
    tímamörkin.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>