<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-06T14:37:26" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:38:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:37:26">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er fátt verra og alvarlegra en þegar
    þingmenn, og það reynslumiklir þingmenn, eru að leggja fólki orð í munn.
    Þessi ríkisstjórn varðist með kjafti og klóm til að koma í veg fyrir
    viðskiptaþvinganir á kísilmálm. Það sem hins vegar er rétt sem hv.
    þingmaður sagði er að fjórfrelsið virkar en það verður að virka. Þetta er
    ekki bara einstefnustræti. Þetta er ekki eins og einhver konfektkassi,
    EES-samningurinn. Það virkar ekki þegar við erum með innleiðingarhalla og
    búin að vera í áratugi, líka undir hv. þingmanni þegar hann var ráðherra.
    Það þýðir ekki að við ætlum bara, eins og ég segi, að umgangast
    EES-samninginn eins og okkur hentar, ekki uppfylla okkar skuldbindingar,
    ekki framfylgja því sem við þurfum að framfylgja. Mér finnst enginn
    manndómsbragur yfir þessum málflutningi af hálfu hv. þingmanns.
    <ns:frammíkall/> Þess vegna eigum við að standa vörð um EES-samninginn, ef
    fjórfrelsið á að virka, <ns:frammíkall/> ef fjórfrelsið á að virka
    <ns:bjalla/> þurfum við að klára innleiðingarhallann. Við þurfum að klára
    bókun 35 og ég skora á hv. þingmann að koma með mér í þá vegferð.
    <ns:frammíkall skst="GÞÞ"> Það er á ESB að standa við
    sitt.</ns:frammíkall></ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BHar">Forseti biður um hljóð í
    salnum.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>